Á von á barni aðeins 16 ára gamall

Poppkúltúr | 12. nóvember 2024

Á von á barni aðeins 16 ára gamall

Bandaríski söngvarinn Triston Harper, best þekktur fyrir þátttöku sína í 22. þáttaröð American Idol, á von á sínu fyrsta barni aðeins 16 ára gamall.

Á von á barni aðeins 16 ára gamall

Poppkúltúr | 12. nóvember 2024

Harper heillaði dómnefndina með frumsömdu lagi í áheyrnarprófinu.
Harper heillaði dómnefndina með frumsömdu lagi í áheyrnarprófinu. Skjáskot/Youtube

Bandaríski söngvarinn Triston Harper, best þekktur fyrir þátttöku sína í 22. þáttaröð American Idol, á von á sínu fyrsta barni aðeins 16 ára gamall.

Bandaríski söngvarinn Triston Harper, best þekktur fyrir þátttöku sína í 22. þáttaröð American Idol, á von á sínu fyrsta barni aðeins 16 ára gamall.

Harper greindi frá tíðindunum á Facebook-síðu sinni nú á dögunum og fékk fjöldann allan af hamingjuóskum frá aðdáendum sínum.

Ungi söngvarinn frá Alabama á von á barni með nýbakaðri eiginkonu sinni, hinni 17 ára gömlu Paris Reed, en parið gekk í hjónaband aðeins örfáum dögum áður en það greindi frá óléttunni.

Harper, sem er sveitasöngvari, vakti mikla athygli fyrir sérstæða söngrödd sína í þáttunum og endaði í 5. sæti hæfileikakeppninnar fyrr á árinu. 




mbl.is