Ómótstæðilega góð kartöflumús með skemmtilegu tvisti

Uppskriftir | 12. nóvember 2024

Ómótstæðilega góð kartöflumús með skemmtilegu tvisti

Góð kartöflumús getur gert góða máltíð enn betri. Ástríðukokkurinn og leirlistakonan Hanna Thordarson er snillingur í eldhúsinu og á heiðurinn af þessari ómótstæðilega góðu kartöflumús sem sú sem þetta skrifar prófaði um helgina. Þetta er kartöflumús með parmesanosti og brenndu smjöri sem bráðnar í munni.

Ómótstæðilega góð kartöflumús með skemmtilegu tvisti

Uppskriftir | 12. nóvember 2024

Ómótstæðilega góð kartöflumús með parmesanosti og brenndu smjör. Sælgæti að …
Ómótstæðilega góð kartöflumús með parmesanosti og brenndu smjör. Sælgæti að njóta. Ljósmynd/Hanna Thordarson

Góð kartöflumús getur gert góða máltíð enn betri. Ástríðukokkurinn og leirlistakonan Hanna Thordarson er snillingur í eldhúsinu og á heiðurinn af þessari ómótstæðilega góðu kartöflumús sem sú sem þetta skrifar prófaði um helgina. Þetta er kartöflumús með parmesanosti og brenndu smjöri sem bráðnar í munni.

Góð kartöflumús getur gert góða máltíð enn betri. Ástríðukokkurinn og leirlistakonan Hanna Thordarson er snillingur í eldhúsinu og á heiðurinn af þessari ómótstæðilega góðu kartöflumús sem sú sem þetta skrifar prófaði um helgina. Þetta er kartöflumús með parmesanosti og brenndu smjöri sem bráðnar í munni.

„Þetta er tvist af kartöflumúsinni hennar mömmu. Ég er búin að bæta parmesanosti við og helli síðan brenndu smjöri yfir.  Skemmtileg tilbreyting að bjóða upp á þessa útgáfu sem á vel með nánast öllu, líka með hátíðarmatnum,“ segir Hanna með bros á vör.

Hægt er að fylgjast með því sem Hanna töfrar fram í eldhúsinu hér.

Kartöflumús með parmesanosti og brenndu smjöri

  • 1 kg kartöflur
  • 1–2 msk. smjör
  • 2½ dl heit mjólk (upp að suðu)
  • Salt og hvítur pipar eftir smekk
  • Smá mulið múskat
  • 12 dl parmesanostur, rifinn fínt
  • Brennt smjör, sjá uppskrift að neðan

Aðferð:

  1. Setjið kartöflurnar í kalt vatn og saltið aðeins og sjóðið, þegar suðan er komin upp, lækkið þá hitann og sjóðið í u.þ.b. 20 mínútur. 
  2. Þið megið flysja karöflurnar áður en þið sjóðið þær eða strax eftir suðu.
  3. Hitið mjólk í potti, til að spara uppþvott er gott að nota pott sem hægt er að nota fyrir kartöflumúsina í lokin.
  4. Pressið kartöflurnar heitar.
  5. Bætið smjöri út í pottinn og hrærið saman við. 
  6. Bætið síðan við heitri mjólkinni ásamt rifna parmesanostinum og hrærið saman. Best er að nota hrærivél. Passið að hræra ekki of lengi.
  7. Kryddið eftir smekk.
  8. Hönnu finnst ágætt að setja kartöflumúsina í lokin í pottinn, sem mjólkin var hituð í, og velgja hana á lágum hita.
  9. Gerið síðan brennda smjörið, sjá uppskrift að neðan.

Brennt smjör

  • 30 g smjör
  • 12 skarlottulaukar, fínt skornir
  • ½1 msk. kapers, smátt saxaðir

Aðferð:

  1. Bræðið smjör í potti ásamt lauk og kapers. 
  2. Það er ágætt að láta smjörið malla á meðalhita í rólegheitum. 
  3. Þegar farið er að krauma í því og froða myndast ætti að fara að koma brúnn litur í botninn.
  4. Þegar laukurinn er orðinn vel brúnn er gott að slökkva á hitanum.
  5. Rétt áður en kartöflumúsin er borin fram er ágætt að skerpa á hvoru tveggja. 
  6. Setjið kartöflumúsina á fat og hellið síðan brennda smjörinu yfir.
mbl.is