Gagnrýna upptöku eldisgjalds

Fiskeldi | 13. nóvember 2024

Gagnrýna upptöku eldisgjalds

„Ákvörðun Alþingis á sl. vori um upptöku svonefnds „eldisgjalds“ vegna eldisfisks í sjókvíum sem lestaðar eru og umskipað í höfnum, eru mikil vonbrigði,“ segir í ályktun hafnarsambandsþings sem haldið var a Akureyri í lok síðasta mánaðar.

Gagnrýna upptöku eldisgjalds

Fiskeldi | 13. nóvember 2024

Hafnasambandið er óánægt með hvernig upptaka eldisgjalds var háttað.
Hafnasambandið er óánægt með hvernig upptaka eldisgjalds var háttað. mbl.is/Helgi Bjarnason

„Ákvörðun Alþingis á sl. vori um upptöku svonefnds „eldisgjalds“ vegna eldisfisks í sjókvíum sem lestaðar eru og umskipað í höfnum, eru mikil vonbrigði,“ segir í ályktun hafnarsambandsþings sem haldið var a Akureyri í lok síðasta mánaðar.

„Ákvörðun Alþingis á sl. vori um upptöku svonefnds „eldisgjalds“ vegna eldisfisks í sjókvíum sem lestaðar eru og umskipað í höfnum, eru mikil vonbrigði,“ segir í ályktun hafnarsambandsþings sem haldið var a Akureyri í lok síðasta mánaðar.

„Það er skýr stefna Hafnasambandsins að „aflagjald“ sem reiknað er af heildarverðmæti afla, sé lagt á allar sjávarafurðir, hvort sem um er að ræða afla beint úr sjó eða eldisfisk í sjókvíum. Samþykkt Alþingis um útfærslu svonefnds „eldisgjalds“ er bæði óskýr og ómarkviss og enginn skýr rökstuðningur fyrir því sértæka gjaldi.“

Þá telur Hafnasambandið mikilvægt að gjaldtaka á afurðum úr sjóeldi sé fyrirsjáanleg og byggi á jafn traustum grunni og aflagjald sem lagt er a afla fiskiskipa.

„Hafnasambandsþing telur brýnt að ákvæðum um gjaldtöku á eldisfiski verði breytt í aflagjald. Samhliða því verði unnin heildarendurskoðun á gildandi hafnalögum líkt og sambandið hefur lagt fram skýrar tillögur um.“

Þá er að mati Hafnasambandsins ósamræmi í því að vinna við nauðsynlegar breytingar á tekjustofnum hafna „geti tekið ár og jafnvel áratugi, en breytingar á tekjustofnum ríkisins af starfsemi tengdri höfnum eigi að keyra í gegn nánast fyrirvaralaust og án eðlilegs samráðs.“

mbl.is