Síðasta dagbókarfærsla Elísabetar Bretadrottningar hefur verið opinberuð í bók Roberts Hardmans, Charles III: New King. New Court. The Inside Story, sem kom út 7. nóvember.

Dagbókarfærsluna skrifaði Elísabet aðeins tveimur dögum fyrir andlát sitt, 8. september 2022.
Þann 6. september settist hún niður til að skrá niður atburði dagsins líkt og hún gerði alla sína valdatíð, þrátt fyrir veikindi sem hrjáðu hana undir það síðasta.
Færslan segir einfaldlega: „Játvarður kom og hitti mig.“ Vísar Elísabet þar til Sir Edwards Youngs, einkaritara síns, sem aðstoðaði hana við að gera ráðstafanir í sambandi við embættiseið þáverandi nýkjörins forsætisráðherra, Liz Truss.
Skipun Truss reyndist síðasta opinbera verkefni drottningar eftir ævilanga opinbera þjónustu.