Fyrrverandi eiginkona ástralska leikarans Hugh Jackman, Deborra-Lee Furness, er sögð hafa vitað um meint framhjáhald Jackman og bandarísku leikkonunnar Sutton Foster.

Furness og Jackman skildu eftir 27 ára hjónaband á síðasta ári, en fréttir af skilnaðinum komu eins og þruma úr heiðskíru lofti því hjónin þóttu mikið fyrirmyndarpar.
Furness hefur til þessa lítið tjáð sig um skilnað sinn við leikarann en nú virðist sem hún hafi staðfest, mjög leynt, meginorsök þess sem leitt hefði til skilnaðarins. Er það samband Jackman og Foster ef marka má Instagram-færslu slúðurbloggarans Töshu Lustig.
Sú fór ofan í saumana á meintu ástarsambandi leikaranna nýverið og deildi pælingum sínum um parið í ítarlegri færslu á samfélagsmiðlasíðunni. Furness líkaði við færslu Lustig, stuttu eftir að hún birtist, og eru netverjar margir hverjir sammála um að hún hafi með því greint frá ástæðu skilnaðarins.
Broadway-stjarnan Sutton Foster sótti um skilnað frá eiginmanni sínum, handritshöfundinum Ted Griffin, eftir tíu ára hjónaband, í október.
Jackman og Foster eru sögð hafa hrifist hvort af öðru þegar þau fóru með aðalhlutverk í söngleiknum The Music Man á Broadway fyrir örfáum árum og að þá hafi farið að hrikta í stoðum hjónabandanna.