Leikarahjónin Laura Prepon og Ben Foster hafa ákveðið að fara hvort í sína áttina eftir sex ára hjónaband. Foster lagði inn skilnaðarpappíra í Nashville snemma í september. Ástæða skilnaðarins er óásættanlegur ágreiningur.

Prepon er hvað þekktust fyrir hlutverk sín í þáttaröðunum That 70’s Show og Orange Is The New Black. Foster hefur leikið í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta og fór meðal annars með hlutverk í kvikmyndinni Contraband sem leikstýrt var af Baltasar Kormáki.
Prepon og Foster trúlofuðu sig í október 2016 eftir aðeins nokkurra mánaða samband og gengu í hjónaband tæpum tveimur árum seinna. Þau eiga saman tvö börn, fædd 2017 og 2020.