Ein vinsælasta söngkona landsins, Emilíana Torrini, er að skilja við eiginmann sinn til fimm ára, Rowan Patrick Robinson Cain. Þetta kom fram í einlægu viðtali söngkonunnar í þættinum Víðsjá á Rás 1 í gær.

Emilíana Torrini, sem er landsmönnum löngu kunn og á að baki langan og farsælan tónlistarferil bæði hérlendis og erlendis.
Í viðtalinu fer Emilíana Torrini í gegnum ferilinn á skemmtilegan og einlægan hátt. Hún er nýkomin úr tónleikaferðalagi sem hún endaði með tvennum þéttsetnum tónleikum í Eldborgarsal Hörpu, þar sem hún söng lögin á nýjustu plötu sinni Miss Flower ásamt nokkrum af sínum vinsælustu lögum frá fyrri tíð.
Aðspurð um hvað taki við eftir tónleikaferðina segist hún ætla að leggja áherslu á að endurnæra sig. Borða heimagerðan mat, drekka mikið af vatni, sofa og verja góðum tíma með börnunum sínum.
Endurnæringin felist einnig í góðri samveru með vinum og vandamönnum, líkt og hún orðar það.