Hjúkrunarfræðingar skrifa undir kjarasamning

Kjaraviðræður | 14. nóvember 2024

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og íslenska ríkið skrifuðu fyrr í dag undir kjarasamning í húsakynnum ríkissáttasemjara. Um níu af hverjum tíu hjúkrunarfræðingum landsins heyra undir samninginn.

Hjúkrunarfræðingar höfðu verið samningslausir frá því í apríl.
Hjúkrunarfræðingar höfðu verið samningslausir frá því í apríl. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og íslenska ríkið skrifuðu fyrr í dag undir kjarasamning í húsakynnum ríkissáttasemjara. Um níu af hverjum tíu hjúkrunarfræðingum landsins heyra undir samninginn.

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og íslenska ríkið skrifuðu fyrr í dag undir kjarasamning í húsakynnum ríkissáttasemjara. Um níu af hverjum tíu hjúkrunarfræðingum landsins heyra undir samninginn.

Þetta staðfestir Ari Brynjólfsson, kynningarstjóri félagsins, í samtali við mbl.is.

Hann segir að nú verði farið í að kynna samninginn fyrir félagsfólki og í kjölfarið fari fram atkvæðagreiðsla um hann.

Hjúkrunarfræðingar hafa verið samningslausir frá því í apríl, þegar skammtímasamningur til eins árs rann út. Nýi samningurinn gildir til fjögurra ára.

mbl.is