Þau sem dreymir um að heimsækja hina sögufrægu borg Istanbúl ættu að gleðjast yfir þeim fréttum að borgin sé nýr áfangastaður Icelandair. Flogið verður til borgarinnar fjórum sinnum í viku frá 5. september á næsta ári og er sala á fluginu hafin. Flugtíminn er um fimm klukkustundir og 30 mínútur. Istanbúl er stærsta borg Tyrklands og liggur beggja vegna Bosporus-sunds sem tengir Svartahaf og Marmarahaf.

Samhliða beinu flugi til tyrknesku borgarinnar mun Icelandair efla enn frekara samstarf við flugfélagið Turkish Airlines. Turkish Airlines er það flugfélag í heiminum sem flýgur til flestra landa og er beint flug Icelandair til Istanbúl sérstaklega tímasett til að tengja vel við flug flugfélagsins tyrkneska áfram til Asíu og Mið-Austurlanda. Þegar samstarfið hefur öðlast fullt gildi verður hægt að bjóða upp á hentugar tengingar og allt að átta klukkutímum styttri ferðatíma til og frá fjölda áfangastaða í austri.
„Istanbul er frábær áfangastaður og með auknu samstarfi við Turkish Airlines opnast mjög góðar tengingar til Íslands frá fjölda áfangastaða í austri. Undanfarin ár höfum við fundið fyrir síauknum áhuga á ferðalögum á milli Asíu og Íslands og með þessum nýju tengingum eflum við sölu- og dreifikerfi okkar í Asíu. Þannig styrkjum við enn frekar okkar öfluga leiðakerfi og sömuleiðis tengingar við spennandi markaði fyrir ferðaþjónustu á Íslandi,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í fréttatilkynningu.