„Ég er ekki samþykkur svo óábyrgum lestri bókarinnar“

Halldór Armand | 15. nóvember 2024

Rithöfundurinn Halldór Armand Ásgeirsson hefur sent frá sér nýtt grínmyndband sem hefur vakið mikla athygli þar sem fólk les nýju skáldsöguna hans, Mikilvægt rusl, í hættulegum og óvenjulegum aðstæðum. Meðal annars sést þar glæpamaður lesa bókina í miðju afbroti og kona ók undir áhrifum bókmennta. Halldór brýnir fyrir fólki að lesa af ábyrgð enda verði heilsa og öryggi lesenda ávallt að vera í fyrirrúmi.

„Ég sem höfundur verð að taka það fram að ég er ekki samþykkur svo óábyrgum lestri bókarinnar,“ segir meðal annars í myndbandinu. Bókin hefur fengið góðar viðtökur og Halldór hefur vakið mikla athygli fyrir skemmtilegt markaðsstarf sitt kringum útgáfuna. 

mbl.is