Katrín Edda Þorsteinsdóttir, verkfræðingur og samfélagsmiðlastjarna, eignaðist sitt annað barn í gær, fimmtudag, með eiginmanni sínum Markus Wasserbaech. Fyrir eiga hjónin dótturina Elísu Eyþóru sem fagnar tveggja ára afmæli sínu þann 17. desember.

Katrín Edda greindi frá komu barnsins, sem er drengur, á Instagram-síðu sinni aðeins örfáum klukkustundum eftir fæðinguna.
„Fæðing er það rosalegasta sem ég hef gengið í gegnum. Ég hélt einhvern veginn að fyrst ég færi sjálf af stað myndi allt verða aðeins... fyrirsjáanlegra heldur en í fæðingunni með Elísu Eyþóru en það var það sko aldeilis ekki. Þegar ég hélt að ég væri með 1 í útvíkkun fékk ég skyndilega þörf til að ýta, missti vatnið, út kom haus og í kjölfarið búkur á litlum kalli í superman stöðu með hönd undir kjálka. Allt á ca. 10 mínútum.
Ég viðurkenni að mér leið alls ekki vel eftir fæðinguna, hvorki líkamlega né andlega. Ég var hálfpartinn í móki eftir sjokkið og vissi varla á hvað ég væri að horfa þegar ég horfði á bláan líkamann á stráknum mínum á gólfinu sem gaf ekki frá sér nokkuð hljóð fyrr en ljósmæður höfðu nuddað hann, blásið í andlitið hans og hann rak loks upp gríðarmikið öskur," skrifaði hún meðal annars við færsluna.
Katrín Edda hefur verið iðin við að deila lífi sínu á samfélagsmiðlum og gaf fylgjendum sínum góða innsýn í meðgönguna yfir síðustu níu mánuði.