Allt annar tónn hjá landsbyggðarþingmönnunum

Alþingiskosningar 2024 | 17. nóvember 2024

Allt annar tónn hjá landsbyggðarþingmönnunum

Oddvitar Samfylkingarinnar segjast vilja hafa Reykjavíkurflugvöll áfram í Vatnsmýrinni þar til trúverðugur valkostur finnist. Hann sé ekki í sjónmáli því völlurinn sé ekki að fara neitt á næstu árum.

Logi Einarsson, oddviti í Norðvesturkjördæmi, og Víðir Reynisson, oddviti í Suðurkjördæmi, hafa báðir komið því afdráttarlaust á framfæri að undanförnu að þeir telji að flugvöllur eigi að vera áfram á þeim stað sem hann er nú. Í það minnsta þar til annar valkostur finnst.

Borgarstjórnarflokkur Samfylkingarinnar hefur um árabil lagt þunga áherslu á að Reykjavíkurflugvöllur í Vatnsmýrinni víki fyrir íbúabyggð en svo virðist sem tónn Samfylkingarinnar í sambandi við flutning flugvallarins sé að mýkjast í málinu.

Best metni kosturinn í stöðunni til þessa hefur verið nýr flugvöllur í Hvassahrauni, en frá því að eldsumbrot hófust aftur á Reykjanesskaga hafa sprottið upp efasemdarraddir um ágæti flugvallarstæðis þar.

„Þar á hann að vera“

„Við erum búin að vera að skoða þetta með áætlunarflugið, að búa til meiri sveigjanleika fyrir það, lengja tímann sem það kæmi til greina,“ sagði Víðir Reynisson á oddvitafundi í Vestmannaeyjum í síðustu viku, þegar oddvitar Suðurkjördæmis voru spurðir hvernig þeir sæju fyrir sér að tryggja góðar flugsamgöngur meðal annars til Vestmannaeyja. Hann hélt áfram:

„Fyrir okkur er ein af grunnforsendum fyrir því að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Og það er mjög skýrt hjá okkur: þar verður hann og þar á hann að vera,“ bætti Víðir við.

„Það er náttúrulega stefna Samfylkingarinnar að flugvöllurinn verði í Vatnsmýrinni þar til annar kostur verður fundinn,“ útskýrir Víðir í samtali við mbl.is, spurður um þessi ummæli.

„Hann er nú ekki í sjónmáli. Þannig að það er ekkert að fara að gerast á næstu árum að þessi flugvöllur fari eitthvað.“

Víðir Reynisson er gestur Spursmála að þessu sinni.
Víðir Reynisson er gestur Spursmála að þessu sinni. mbl.is/María Matthíasdóttir

Hefur sagt þetta í átta ár

Logi Einarsson, oddviti í Norðausturkjördæmi, hefur einnig tekið í svipaðan streng í kosningabaráttunni.

„Flokkurinn í borginni hefur alltaf skilið það – og hluti af samkomulaginu við innviðaráðherra er það – að flugvöllurinn verði þar sem hann er þar til að jafn góður eða betri kostur er tilbúinn,“ segir Logi í samtali við mbl.is en hann var formaður flokksins á árunum 2016 til 2022.

„Ég hef ekki talað neitt öðruvísi síðan ég byrjaði sem formaður,“ segir Logi.

Logi Einarsson, oddviti Samfylkingar í Norvesturkjördæmi og fyrrverandi formaður flokksins.
Logi Einarsson, oddviti Samfylkingar í Norvesturkjördæmi og fyrrverandi formaður flokksins. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ekki náðist í Dag B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóra, sem skipar annað sæti á lista flokksins í Reykjavík Norður fyrir alþingiskosningar, við vinnslu fréttarinnar. 

mbl.is