Ólafur Ingi er fimmtugur faðir, bifvélavirki og kennari sem hefur gengið í gegnum margt á sinni lífsleið. Um er að ræða langa sögu af áföllum, sorgum og sigrum. Hann er gestur Tinnu Barkardóttur sem heldur úti hlaðvarpinu Sterk saman.
Ólafur Ingi er fimmtugur faðir, bifvélavirki og kennari sem hefur gengið í gegnum margt á sinni lífsleið. Um er að ræða langa sögu af áföllum, sorgum og sigrum. Hann er gestur Tinnu Barkardóttur sem heldur úti hlaðvarpinu Sterk saman.
Ólafur Ingi er fimmtugur faðir, bifvélavirki og kennari sem hefur gengið í gegnum margt á sinni lífsleið. Um er að ræða langa sögu af áföllum, sorgum og sigrum. Hann er gestur Tinnu Barkardóttur sem heldur úti hlaðvarpinu Sterk saman.
Ólafur Ingi ólst upp í litlu sjávarþorpi þar sem börn fengu að leika sér frjáls og njóta þess að vera börn.
„Ég átti æðislega æsku í raun. Við vinirnir lékum okkur úti, það var alltaf einhver mamman heima sem sá þá um að gefa okkur að borða en þegar ég kom heim var ég yfirleitt skammaður fyrir eitthvað eða látið eins og ég væri ekki,“ segir Ólafur Ingi og greinir frá því að hann hafi ekki passað vel inn í íslenskt skólakerfi. Hann gat ekki setið kyrr og farið eftir reglum.
Ólafur Ingi missti föður sinn þegar hann var þrettán ára gamall.
„Ég man að mamma kom til mín og sagði að ég þyrfti ekki að fara í skólann daginn eftir en ég skyldi ekki af hverju það væri verið að klína þessu upp á mig. Við höfðum aldrei talað um tilfinningar,“ segir Ólafur Ingi.
Faðir hans var alkóhólisti og tók hann þátt í feluleiknum sem fylgir þeim fjölskyldusjúkdómi.
„Ég áttaði mig auðvitað ekki á því að hann hafi verið alkóhólisti fyrr en seinna því það voru ekki læti og ofbeldi heima.“
„Ég fór inn í unglingsárin og byrjaði ungur að drekka með vinunum og það var mikið partýstand. Ég er einn af þessum heppnu sem rétt slapp held ég, hefði alveg geta endað hinum megin, í neyslu, en það slapp.“
Ólafur Ingi lýsir því hvernig hann hafi aldrei staðið með sjálfum sér eða vitað almennilega hvað hann vildi. Hann fylgdi bara því sem var samfélagslega samþykkt.
„Ég eignaðist kærustur. Ein sagði við mig að það væri eðlilegt að byrja að búa svo við gerðum það svo sagði hún að maður ætti að eignast barn svo við gerðum það og svo að lokum sagði hún að það væri eðlilegt að hætta saman, svo við gerðum það. Ég var aldrei spurður og hafði svosem ekkert um málin að segja, ég flaut bara með,“ segir hann.
Það var ekki fyrr en Ólafur Ingi varð fertugur að hann fór að sækja al-anon fund. Þar fann hann sig.
„Ég mætti á fundinn og hélt að þetta væri eitthvað svindl því þarna var fólk að lýsa mér og mínum tilfinningum.“
Á tímabili var Ólafur Ingi svo veikur andlega að hann hugleiddi sjálfsvíg daglega og getur því skilið þá vanlíðan sem fólk glímir við.
„Elsta dóttir mín varð svo líka mjög veik á einum tímapunkti sem endaði með því að hún endaði sitt líf. Ég gat fyrirgefið henni eða skilið hennar ákvörðun þrátt fyrir þennan hrikalega sársauka sem fylgdi því. Því ég veit hvernig það er að líða svona.“
„Ég fann mína hjálp í al-anon og einnig fékk ég eins konar skýringar á mörgu þegar ég komst að því að ég væri á einhverju einhverfu rófi. Það útskýrir margt. Ég bað þá konuna mína, fyrrverandi, um skilning og að ég þyrfti aðstoð en hún sagði nei og vildi skilnað.“
Hægt er að hlusta á þáttinn á hlaðvarpsvef mbl.is.