Hendrikka Waage, skartgripahönnuður og listakona, opnaði einkasýningu á verkum sínum í Sendiráði Íslands í Lundúnum í síðustu viku. Sýningin ber titilinn Hinn Heilagi Staður og má á henni sjá grípandi málverk af andlitum kvenna.

Hendrikka er búsett í Lundúnum og hefur ferill hennar verið í stöðugri þróun og vaxið ár frá ári. Undanfarin 20 ár hefur skartgripahönnun átt hug hennar en síðustu ár hefur orka Hendrikku og listsköpun beinst að málverkum í seríunni Yndislegar persónur.
Í seríunni er áherslan lögð á konur með eitt eyra þar sem Hendrikka skyggnist inn í heim upplýsingaóreiðu og mikilvægi þess að sía út það sem skiptir raunverulega máli og meðtaka þær upplýsingar.
Hendrikka var um tíma búsett í Tókýó og er undir miklum áhrifum frá árum sínum þar sem og ríkri menningu borgarinnar. Verk Hendrikku á sýningunni eru undir áhrifum Torii-hliðsins þar sem sú byggingarlist leggur áherslu á breytinguna frá hinu venjubundna yfir í það heilaga og má oft sjá við innganginn á Shinto-altarinu. En altarið markar landamærin á milli hinnar venjulegu heimsmyndar og hins heilaga stað þar sem guðirnir búa.