Fiskeldisfyrirtækið Kaldvík á Austfjörðum hefur ráðið Ólöfu Helgu Jónsdóttur sem nýjan framkvæmdastjóra mannauðs og menningar. Um er að ræða nýtt stöðugildi í fyrirtækinu þar sem um 220 manns starfa, að því er segir í tilkynningu.

Þar segir að „Ólöf býr yfir víðtækri reynslu úr ýmsum stjórnunarstörfum, alþjóðlega. Hún starfaði áður sem mannauðsstjóri Borgunar og síðar sem aðstoðarforstjóri hjá greiðslumiðlunarfyrirtækinu Teya. Nú síðast gegndi hún stöðu framkvæmdastjóra rekstrar hjá fyrirtækinu Paymentology sem er 700 manna fyrirtæki með starfsstöðvar um allan heim.“
Ólöf Helga situr í stjórn Teya á Íslandi og hefur tvisvar hlotið viðurkenningu fyrir eftirtektarverða frammistöðu í íslensku viðskiptalífi.
„Það er mikið gleðiefni að fá til okkar Ólöfu sem mannauðsstjóra. Ráðning Ólafar er mikilvægur liður í uppbyggingu Kaldvíkur. Við leggjum mikinn metnað í að halda okkar starfsfólki ánægðu og öruggu. Fyrirtækið er mikilvægur vinnuveitandi á Austfjörðum og við viljum bjóða upp á eftirsóknarvert starfsumhverfi. Reynsla og menntun Ólafar mun koma til með að aðstoða okkur á þeirri vegferð,“ er haft eftir Roy-Tore Rikardssen, forstjóra Kaldvíkur, í tilkynnignunni.
Þó nokkrar breytingar hafa æatt sér stað í starfsemi félagsins að undanförnu. Var félagið nýverið skráð á First North markað Nasdaq í vor og lét Guðmundur Gíslason af störfum sem forstjóri félagsins við lok ágúst.
„Við erum mjög þakklát Guðmundi fyrir ómetanlegt framlag hans til þróunar félagsins frá stofnun þess. Við værum ekki þar sem við erum í dag ef ekki væri fyrir Guðmund," sagði Asle Rønning, stjórnarformaður Kaldvíkur, við tilefnið.