Vill stórauka strandveiðar

Alþingiskosningar 2024 | 20. nóvember 2024

Vill stórauka strandveiðar

Sigurjón Þórðarson, oddviti Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi, segir framfærslumál hjá lífeyrisþegum brenna á fólki sem og húsnæðismálin.

Hann segir að Flokkur fólksins leggi áherslu á að það verði „opnaður vegurinn til sjávarins“ með því til dæmis að stórauka strandveiðar.

„Þannig að þessar minni byggðir – Grímsey, Raufarhöfn, Hofsós – hringinn í kringum landið, Þingeyri og allir þessir staðir, að þeir geti nú farið aftur og rennt fyrir fisk. Þetta kerfi sem hefur verið við lýði núna í 40 ár hefur ekki skilað öðrum árangri en minni afla í öllum tegundum sem hafa verið kvótasettar,“ segir Sigurjón.

Skili af sér ömurlegu búi

Hann segir réttlætanlegt að taka lán fyrir innviðauppbyggingu samgöngumannvirkja þar sem um sé að ræða arðbæra fjárfestingu.

Fráfarandi ríkisstjórn sé að skila af sér ömurlegu búi í samgöngumálum.

Sigurjón í viðtali við Morgunblaðið á Akureyri.
Sigurjón í viðtali við Morgunblaðið á Akureyri. mbl.is/Ágúst
mbl.is