Vinaþjóðir Úkraínumanna lokuðu margar sendiráðum sínum í Kænugarði eftir að þeim barst hótanir um „gríðarstóra loftárás“ á borgina. Úkraínumenn gagnrýna þjóðirnar fyrir að kynda undir „sálfræðihernað“ Rússa.

Gerist þetta skömmu eftir að Úkraínumenn skutu langdrægum eldflaugum úr vopnabúri Bandaríkjamanna á rússneskt yfirráðasvæði. Talið er að stjórnvöld í Moskvu leiti nú leiða til að svara Úkraínumönnum í sömu mynt
Rússnesk stjórnvöld hafa sakað Joe Biden, fráfarandi Bandaríkjaforseta, um að draga stríðið á langinn með því að heimila Úkraínumönnum að nota flugskeytin, en það gerði hann eftir að Rússar létu sprengjum rigna víða um Úkraínu og hæfðu meðal annars orkuinnviði í landinu.
Bandaríkin voru fyrst til þess að loka sendiráði sínu í Kænugarði fyrir almenning og sögðu yfirvöld hafa fengið „nákvæmar upplýsingar um möguleika á umtalsverðri loftárás“ í dag.
Frekari upplýsingar veitti sendiráðið ekki.
Grikkland, Ungverjaland, Ítalía og Spánn, sem öll eru aðildarríki Atlantshafsbandalagsins, fylgdu fordæmi Bandaríkjamanna og lokuðu aðstöðum erindreka sinna í úkraínsku höfuðborginni.
Úkraínskir ráðamenn hafa gagnrýnt lokanirnar og biðluðu til bandamanna sinna að dreifa ekki frekari ótta um úkraínska samfélagið.
Stjórnvöld í Kænugarði segja að þær „upplýsingar“ sem Bandaríkjamenn vísuðu til virtust vera „aðgerð í sálfræðihernaði“ Rússa, sem væri með þessu að reyna að veikja Úkraínumenn.
„Við minnum ykkur á að hótanir um árásir frá árásarþjóðinni hafa því miður verið daglegur raunveruleiki fyrir Úkraínumenn í 1.000 daga,“ segir úkraínska utanríkisráðuneytið í yfirlýsingu á samfélagsmiðlum.
Leyniþjónusta Úkraínu, GUR, segir að „fölsuð“ skilaboð væru í dreifingu á samfélagsmiðlum sem gæfu til kynna að stór sprengjuárás væri vofandi yfir Kænugarði.
„Hryðjuverkaríkið er að framkvæma gríðarstóra upplýsinga- og sálfræðilega árás gegn Úkraínu,“ skrifar GRU í yfirlýsingu.
Innrásin í Úkraínu er nú á sínu þriðja ári og sigur Donalds Trumps Bandaríkjaforseta hefur stefnt framtíð stríðsins í ákveðna óvissu þar sem repúblikaninn hefur ítrekað gagnrýnt stuðning Bandaríkjamanna við Úkraínu.
Slíkar yfirlýsingar hafa vakið ugg í Úkraínu og Evrópu allri þar sem óljóst er hversu vel Úkraínumenn ráði við innrás Rússa án stuðnings Bandaríkjanna.