Tónlistarmaðurinn Árni Páll Árnason, betur þekktur sem Herra Hnetusmjör, fagnar því í dag að hafa verið edrú í átta ár.

Í tilefni dagsins birti tónlistarmaðurinn færslu á Instagram-síðu sinni.
„Í dag eru 8 ár frá því að ég játaði mig sigraðan fyrir áfengi og fíkniefnum.
Ég er þakklátur fyrir það fallega líf sem ég á í dag og fyrir að þurfa ekki hugbreytandi efni til að takast á við hið góða eða slæma. Í dag eru líka 3 dagar í seríu 2 af Iceguys og ég hlakka til að þið sjáið þá snilld,“ skrifar Árni Páll við færsluna.
Herra Hnetusmjör er einn vinsælasti tónlistarmaður landsins. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann gefið út sex breiðskífur. Hann hefur einnig slegið rækilega í gegn með strákahljómsveitinni IceGuys.