Kartöflusalatið sem sló í gegn hjá Michelin-stjörnukokki

Uppskriftir | 21. nóvember 2024

Kartöflusalatið sem sló í gegn hjá Michelin-stjörnukokki

Boðið var upp á glæsilega matarveislu í franska sendi­ráðsbú­staðinum hjá sendi­herra Frakk­lands, Guillaume Baz­ard, á dög­un­um. Veisl­an var hald­in í til­efni þess að franski Michel­in-stjörnu­kokk­ur­innn Thom­as Koe­bel frá Strass­borg kom hingað til lands að kynna hefðbund­inn mat frá héraðinu sínu Alsace.

Kartöflusalatið sem sló í gegn hjá Michelin-stjörnukokki

Uppskriftir | 21. nóvember 2024

Thomas Koebel Michelin-stjörnukokkur fór á kostum í franska sendiráðsbústaðinum með …
Thomas Koebel Michelin-stjörnukokkur fór á kostum í franska sendiráðsbústaðinum með kræsingarnar sínar. mbl.is/Karítas

Boðið var upp á glæsilega matarveislu í franska sendi­ráðsbú­staðinum hjá sendi­herra Frakk­lands, Guillaume Baz­ard, á dög­un­um. Veisl­an var hald­in í til­efni þess að franski Michel­in-stjörnu­kokk­ur­innn Thom­as Koe­bel frá Strass­borg kom hingað til lands að kynna hefðbund­inn mat frá héraðinu sínu Alsace.

Boðið var upp á glæsilega matarveislu í franska sendi­ráðsbú­staðinum hjá sendi­herra Frakk­lands, Guillaume Baz­ard, á dög­un­um. Veisl­an var hald­in í til­efni þess að franski Michel­in-stjörnu­kokk­ur­innn Thom­as Koe­bel frá Strass­borg kom hingað til lands að kynna hefðbund­inn mat frá héraðinu sínu Alsace.

„Mig hefur langað til að verða kokkur alveg síðan að ég var lítill krakki,” segir Thomas þegar hann er spurður um hvenær ástríða hans á matargerð hófst. „Pabbi minn eldaði mjög oft heima og ég horfði á hann elda og hjálpaði honum svo við eldamennskuna.

Ég hóf feril minn hjá mörgum mismunandi veitingastöðum í Alsace héraði og komst þannig í kynni við fullt af fólki, sköpunargleðina og vinnusemina.

Kartöflusalatið á milli kræsinga.
Kartöflusalatið á milli kræsinga. mbl.is/Karítas

Eftir nokkur ár hlotnaðist mér tækifæri að taka við staðnum Le Relais de la Poste sem er fallegt hótel og veitingastaður á útjaðri Strassborgar. Eftir nokkur ár af ómældri vinnu, fengum við Michelin-stjörnuna árið 2023. “

Michelin-stjarnan varð að húðflúri

Thomas er með húðflúr af Michelin-stjörnunni á framhandleggnum sínum og segir hlæjandi: „Ég lét húðflúra allan handlegginn fyrir mörgum árum en skildi eftir pláss hér fremst fyrir Michelin-stjörnuna. Hún var markmiðið.”

Aðspurður um hefðbundna rétti frá Alsace héraði sem liggur í Frakklandi til austurs nálægt Þýskalandi segir hann að frægustu réttirnir þaðan séu eflaust Choucroute, sem er heitt súrkál með ýmiskonar kjötmeti, Tarte flambée eða flammkuche sem er þunn baka með sýrðum rjóma og beikoni, kouglof sem er einskonar krydduð kaka, og baekaoffe sem er kássa gerð úr kjöti, rótargrænmeti soðnu upp úr hvítvíni.

„Allt eru þetta frægir hefðbundnir réttir með mikla sérstöðu,” segir Thomas. 

„Ég mæli með því að ferðast til Alsace. Héraðið er einstaklega ríkt af menningararfi og matarmenningu. Það er svo margt fallegt að sjá þar. Ég mæli með að sjá höllina í Haut Koeningsbourg, dómkirkjuna í Strassborg og jólamarkaðinn dásamlega í Strassborg. Svo er hægt að fara í frábærar gönguferðir, til dæmis fræga vínleiðin eða Route des vins, Kaysesberg, Colmar og auðvitað að kynna sér matarhefðir hins hefðbundna Winstub sem er vínstofa á Alsace máli,“ segir Thomas með bros á vör.

Le Relais de la Poste, einstaklega fallegt hótel og veitingastaður …
Le Relais de la Poste, einstaklega fallegt hótel og veitingastaður á útjaðri Strassborgar. Ljósmynd/Aðsend

Thomas er mjög ánægður að koma til Íslands en þetta er í fyrsta sinn sem hann kemur hingað. Hann hefur fylgst grannt með norræni matargerð undanfarin ár.

„Matargerðin í Reykjavík hefur komið mér skemmtilega á óvart. Hefðbundnir réttir eru mjög bragðmiklir og sjávarfangið er stórkostlega ferskt. Ég var mjög hrifinn af því hvað það er mikið af mismunandi veitingastöðum í Reykjavík.“

Þegar hann er spurður hvort markmið hans sé að ná í fleiri Michelin-stjörnur fyrir staðinn sinn segist hann bara vilja halda í þessa fyrstu stjörnu sem sé heilmikil vinna. „Það er alveg nóg að vera með eina stjörnu og passa upp á að halda henni. Ég þarf líka að eiga tíma með fjölskyldunni minni,” segir hann og brosir.

Að lokum var Thomas beðinn um að deila klassísku kartöflusalati frá Alsace sem gestir sendiráðsins fengu að smakka í veislunni í sendiráðsbústaðinum franska á dögunum sem sló í gegn. Salatið kallast Grümbersalat og Thomas var til í að deila uppskriftinni með lesendum Matarvefsins.

Vert er að nefna að Melfor edik er ekki fáanlegt hér á landi en um er að ræða sérstakt edik frá Alsace með hunangskeim. Í staðinn er hægt að nota eplaedik eða hvítvínsedik.

Byggingarstíllinn er mjög fallegur í Strassborg.
Byggingarstíllinn er mjög fallegur í Strassborg. Ljósmynd/Aðsend

Grümbersalat

  • 500 g kartöflur
  • 1 stór laukur. smátt skorinn
  • 30 g súr gúrka, smátt skorin
  • 50 g, fersk steinselja, söxuð
  • 1 msk. Dijon sinnep
  • 10 cl Melfor edik
  • 15 cl olía
  • 15 cl heitur kjúklingakraftur

Aðferð:

  1. Sjóðið kartöflurnar í vatni. Þegar þær eru soðnar og enn heitar, skrælið þær og skerið í litla ferninga. Blandið öllu hinu við og bætið við bæði salti og pipar.
  2. Þetta kartöflusalat er borið fram volgt og er yfirleitt borið fram með Knack pylsum frá Strassborg en svipaðar pylsur er til dæmis hægt að fá í Pylsumeistaranum.
mbl.is