Útsýnið sem mætti ferðalöngum á Keflavíkurflugvelli í rökkrinu í morgun var ekki ónýtt en vel sást til eldgossins sem hófst í Sundhnúkagígaröðinni í gærkvöldi.

Sex vélar frá Play og 17 vélar frá Icelandair hófu sig á loft upp í rauðan himininn fyrir birtingu og þrjár vélar frá Play og 12 vélar frá Icelandair komu til landsins áður en birta tók.
Brottfararferðalangar sáu glefsur af gosinu en kveðja Ísland sjálfsagt með blendnum tilfinningum hafandi ekki meiri tíma til að virða það fyrir sér en eins og skáldið sagði: „Einir koma og aðrir fara í dag og alltaf bætast nýir hópar í skörðin.“