Rafmagn komið á: Engin viðgerð fyrr en eftir gosið

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 21. nóvember 2024

Rafmagn er aftur komið á í Grindavík en Svartsengisvirkjun féll út af neti Landsnets í kjölfar þess að Svartsengislína leysti út.

Rafmagn er komið á að nýju í Grindavík.
Rafmagn er komið á að nýju í Grindavík. Samsett mynd/Oddur Björnsson/mbl.is/Eyþór

Rafmagn er aftur komið á í Grindavík en Svartsengisvirkjun féll út af neti Landsnets í kjölfar þess að Svartsengislína leysti út.

Rafmagn er aftur komið á í Grindavík en Svartsengisvirkjun féll út af neti Landsnets í kjölfar þess að Svartsengislína leysti út.

Ástæða rafmagnsleysisins var hraunrennsli undir línu og tilkynnt var um rafmagnsleysið rúmlega níu í morgun. Búið var að koma rafmagni á að nýju um klukkan 9.50. 

Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Landsnets, segir að komið hafi flökt á rafmagnið á Reykjanesi og í Hafnarfirði einnig þegar Svartsengislína sló út en ekki kom til rafmagnsleysis þar. 

„Að öllum líkindum verður ekkert hægt að fara í viðgerð á Svartsengislínu fyrr en atburðurinn er genginn yfir. Rafmagni var komið á með öðrum leiðum.“ 

mbl.is