Úlfar: Heppileg tímasetning á gosinu

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 21. nóvember 2024

Úlfar: Heppileg tímasetning á gosinu

Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir að rýming fólks frá Grindavík og Bláa lóninu hafi gengið vel fyrir sig en eldgos hófst við Stóra Skógfell klukkan 23.14 í gærkvöld.

Úlfar: Heppileg tímasetning á gosinu

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 21. nóvember 2024

Viðbragðsaðli ásamt ferðamanni við Grindavíkurveg virða fyrir sér gosið nú …
Viðbragðsaðli ásamt ferðamanni við Grindavíkurveg virða fyrir sér gosið nú á áttunda tímanum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir að rýming fólks frá Grindavík og Bláa lóninu hafi gengið vel fyrir sig en eldgos hófst við Stóra Skógfell klukkan 23.14 í gærkvöld.

Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir að rýming fólks frá Grindavík og Bláa lóninu hafi gengið vel fyrir sig en eldgos hófst við Stóra Skógfell klukkan 23.14 í gærkvöld.

„Mér sýnist hafa dregið töluvert úr gosinu en Grindavíkurvegurinn er farinn í sundur og það eru kannski helstu tíðindi næturinnar. Við höfum góða reynslu á að koma Grindavíkurveginum í gagnið tiltölulega fljótt aftur. Það er mat vísindamanna að þetta gos sé ekki eins kröftugt og síðustu tvö gos,“ segir Úlfar við mbl.is.

Úlfar segir að áhyggjur manna núna beinist nú helst að Njarðvíkurlögninni en hraunið stefnir í átt að henni og klukkan 6 í morgun var það tæplega 600 metra frá henni. Hann segir að lögnin sé vel varin.

Ferðamenn skoða eldgosið við lokunarpóstinn hjá Grindavíkurvegi.
Ferðamenn skoða eldgosið við lokunarpóstinn hjá Grindavíkurvegi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hann segir að dvalið hafi verið í 50-60 húsum í Grindavík í gær.

„Rýmingin gekk ljómandi vel en það steðjaði svo sem engin hætta fyrir þá sem dvöldu í bænum miðað við staðsetningu gossins. Það var því engin asi á rýmingunni,“ segir Úlfar.

Hann segir að alltaf sé eitthvað um að vegfarendur á Reykjanesbrautinni stöðvi bíla sína í vegkantinum og vilji berja sjónarspilið augum en ekki hafi skapast nein vandræði vegna þess.

Allir viðbragðsaðilar orðnir mjög sjóaðir

„Þegar við fórum í að rýma Grindavík og svæðið í Svartsengi þá settum við upp lokunarpóst á Grindavíkurveginn upp við Reykjanesbraut og eins á Suðurstrandarvegi á bílastæði sem við köllum P1 við Fagradalsfjall. Þá er lokunarpóstur á Nesveginum við Hafnir,“ segir Úlfar.

Úlfar segir að allir viðbragðsaðilar séu orðnir mjög sjóaðir enda orðnir öllu vanir en gosið sem hófst í gærkvöldi er það tíunda á Reykjanesskaganum frá árinu 2021 og það sjöunda í röðinni í Svartsengiskerfinu.

„Þetta gengur ágætlega og tímasetningin á gosinu var heppileg fyrir okkur í ljósi þess að mjög var farið að hægjast á umferð og staðsetningin á því góð.“

Mynd frá eldgosinu sem tekin var nú áttunda tímanum.
Mynd frá eldgosinu sem tekin var nú áttunda tímanum. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is