Búið er að birta brot úr nýjustu Netflix-þáttum Harry og Meghan sem fjalla um póló íþróttina. Skiptar skoðanir eru meðal aðdáenda og margir segjast ekki ætla að horfa á þættina. Þá hafa dýraverndunarsamtök gagnrýnt þættina þar sem íþróttin fer illa með hestana.

Í kynningarefni Netflix segir að um sé að ræða þætti sem gefa áhorfendum innsýn í hraðan og glæsilegan heim póló íþróttarinnar.
Samfélagsmiðillinn X (áður Twitter) logar um þessar mundir og fólk keppist við að viðra skoðanir sínar á þessu nýjasta framtaki hjónanna.
„Alls ekki! Allt sem þau snerta fer í ruslið,“ sagði einn á X.
„Ég þraukaði í 40 sekúndur og fór strax að leiðast,“ sagði einn eftir að hafa horft á kynningarmyndbandið um þættina.
Aðrir voru þó vongóðir:
„Póló virðist vera íþrótt elítunnar. Kannski mun þetta koma fólki á óvart með smá blöndu af glamúr og dramatík. Sjáum hvað setur.“
Illa gengur fyrir Harry og Meghan að fóta sig í Bandaríkjunum. Enn er beðið eftir að þau tilkynni um sýningu lífsstílsþátta Meghan sem eiga að vera tilbúnir fyrir margt löngu. Ekki er vitað hvað veldur töfunum.