Reiðubúin að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum

Kjaraviðræður | 22. nóvember 2024

Reiðubúin að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum

Kennarasamband Íslands er reiðubúið að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum. 

Reiðubúin að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum

Kjaraviðræður | 22. nóvember 2024

Börnin gætu mætt aftur í skólann á miðvikudag, verði tillagan …
Börnin gætu mætt aftur í skólann á miðvikudag, verði tillagan samþykkt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kennarasamband Íslands er reiðubúið að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum. 

Kennarasamband Íslands er reiðubúið að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum. 

Frá þessu greinir sambandið í tilkynningu. 

Fjórir leikskólar hafa verið í verkfalli frá 29. október. Það eru leikskóli Seltjarnarness, Drafnarsteinn í Reykjavík, Holt í Reykjanesbæ og Ársalir á Sauðárkróki. 

Geta opnað aftur á miðvikudag

Kennarasambandið hefur sent borgarstjóra og bæjarstjórum á Seltjarnarnesi, Sauðárkróki og í Reykjanesbæ erindi þar sem tilkynnt er um að þau séu tilbúin að afstýra verkföllum í leikskólunum frá 27. nóvember með þeim skilyrðum að sveitarfélögin skuldbindi sig til að greiða laun þeirra starfsmanna sem voru í verkfalli. 

Í tilkynningunni segir að fordæmi séu fyrir slíku. 

„Ef tillaga KÍ verður samþykkt þá gætu leikskólarnir fjórir opnað fyrir öll börn á miðvikudag í næstu viku. Borgarstjóri og bæjarstjórar eru beðnir um að svara erindinu eigi síðar en klukkan tólf á mánudag.“

Verkfallsaðgerðir voru boðaðar í tíu leikskólum til viðbótar í dag. 

mbl.is