Spursmál: Lífróður Sigurðar Inga og Samfylkingin lækkar flugið

Spursmál | 22. nóvember 2024

Spursmál: Lífróður Sigurðar Inga og Samfylkingin lækkar flugið

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, sat fyrir svörum í leiðtogaspjalli undir stjórn Stefáns Einars Stefánssonar í nýjasta þætti Spursmála.

Þátturinn var sýndur hér á mbl.is fyrr í dag en upptöku af honum má sjá og heyra í spilaranum hér að ofan, á Spotify og YouTube, og er hún öllum aðgengileg.

Svarar fyrir fylgið

Fylgi Framsóknarflokksins hefur verið að mælast við frostmark í skoðanakönnunum undanfarið. Samkvæmt tölum frá liðinni viku er alls kostar óvíst hvort Framsókn komi til með að ná manni inn á þing.

Í þættinum svarar Sigurður Ingi fyrir fylgið sem er í sögulegu lágmarki sem stendur og verður hann meðal annars spurður út í hvaða brögðum hann ætli að beita til að reisa fylgi flokksins við í yfirstandandi kosningabaráttu.

Fréttir vikunnar krufðar

Auk Sigurðar Inga mæta þau Orri Páll Jóhannsson, þingmaður Vinstri grænna, og Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, sem situr í 2. sæti á lista Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi, í settið til að kryfja helstu fréttir í líðandi viku.

Rýnt í nýjustu tölur

Að vanda færir Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, fregnir af sjóðheitum tölum úr skoðanakönnun Prósents í þætti dagsins. Þar rýnir hann og ræðir stöðuna á hinu pólitíska sviði ásamt Stefáni Einari þar sem ljóst er að Samfylkingin lækkar nú flugið. 

Ekki missa af lifandi og upplýsandi kosningaumræðu í Spursmálum hér á mbl.is.

Nanna Gunnlaugsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson og Orri Páll Jóhannsson eru …
Nanna Gunnlaugsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson og Orri Páll Jóhannsson eru gestir Stefáns Einars Stefánssonar í Spursmálum í dag. Samsett mynd/María Matthíasdóttir
mbl.is