Álag á útsvarsgreiðslur íbúa, sem gilt hefur í Árborg síðustu misseri og var innlegg til þess að vinna á fjárhagsvanda sveitarfélagsins, verður afnumið á næsta ári. Skuldaviðmið heldur áfram að lækka og verður 126% af ársveltu. Niðurstaða af rekstri A- og B-hluta bæjarsjóðs verður 105 millj. kr. Veltufé frá rekstri verður 2,1 milljarður kr.

Þetta eru helstu punktar í fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar sem var til fyrri umræðu í bæjarstjórn nú í vikunni. Fasteignaskattur hækkar en á móti kemur að vatns- og fráveitugjald verður lækkað. Stöðugildum verður áfram fækkað með starfsmannaveltu og gjaldskrárhækkanir verða í takt við kjarasamninga.
Áætlað er að framkvæma á vegum Árborgar fyrir rúmlega tvo milljarða á næsta ári. Hefur eigna- og veitunefnd ásamt starfsmönnum sveitarfélagsins unnið að forgangsröðun svo nýting verði sem best. „Ég er nokkuð sáttur við stóru línurnar í þessari fjárhagsáætlun. Skuldir sveitarfélagsins sem nú eru 31,5 milljarðar króna lækka lítið eitt milli ára og allt í rekstrinum þokast í rétta átt,“ segir Bragi Bjarnason bæjarstjóri.
Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu í dag.