Dregið úr gosóróa

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 24. nóvember 2024

Dregið úr gosóróa

„Virkni í nótt var nokkuð stöðug framan að, en klukkan 5 í morgun dró úr gosóróa og samhliða því minnkaði sjáanleg virkni í miðgígnum, þeim gíg sem hefur verið virkastur hingað til.“

Dregið úr gosóróa

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 24. nóvember 2024

Frá gosstöðvunum síðdegis í gær.
Frá gosstöðvunum síðdegis í gær. mbl.is/Hörður

„Virkni í nótt var nokkuð stöðug framan að, en klukkan 5 í morgun dró úr gosóróa og samhliða því minnkaði sjáanleg virkni í miðgígnum, þeim gíg sem hefur verið virkastur hingað til.“

„Virkni í nótt var nokkuð stöðug framan að, en klukkan 5 í morgun dró úr gosóróa og samhliða því minnkaði sjáanleg virkni í miðgígnum, þeim gíg sem hefur verið virkastur hingað til.“

Svo segir í tilkynningu frá náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands.

Enn eru þó þrír gígar virkir, sá syðsti hefur verið minnstur undanfarna daga en virkni í honum, sem og í nyrsta gígnum, virðist vera nokkuð stöðug áfram.

Miðgígurinn hefur verið að fæða hrauntröð meðfram Stóra Skógfelli og áfram meðfram varnargörðum við Svartsengi og Bláa lónið, því ætti minnkandi virkni í honum að skila sér í minna hraunflæði að varnargörðunum á því svæði.

Gasmengun (SO2) hefur verið að mælast í Grindavík í nótt og í morgun.

„Við bendum fólki á svæðinu að fylgjast með loftgæðamælingum í rauntíma á vefsíðu Umhverfisstofnunar loftgaedi.is, en þar er einnig að finna upplýsingar um viðbrögð við gasmengun af völdum eldgosa.“

Meðfylgjandi mynd sýnir óróagraf frá jarðskjálftamæli á Litla-Skógfelli, græn lína …
Meðfylgjandi mynd sýnir óróagraf frá jarðskjálftamæli á Litla-Skógfelli, græn lína sýnir gosóróa, sem hefur snögga lækkun um kl. 5 í morgun. Mynd af gígunum, úr vefmyndavél VÍ norðan Fagradalsfjalls, til vinstri er frá miðnætti og til hægri er frá því kl. 9:30 núna í morgun. Kort/Veðurstofa Íslands
mbl.is