Jólaleg eplakaka sem yljar sálinni

Uppskriftir | 24. nóvember 2024

Jólaleg eplakaka sem yljar sálinni

Epli og kanill er góð jólablanda og hefur ávallt verið í miklu uppáhaldi hjá Valgerði Grétu Gröndal sælkera og matarbloggara, alla jafna kölluð Valla. Hún deildi á dögunum með fylgjendum sínum á Instagram hugmynd af þessari jólalegu eplaböku sem sló í gegn á hennar heimili sem vel er hægt að mæla með.

Jólaleg eplakaka sem yljar sálinni

Uppskriftir | 24. nóvember 2024

Ekta jólaleg eplakaka úr smiðju Völlu Gröndal. Þessi yljar sálinni …
Ekta jólaleg eplakaka úr smiðju Völlu Gröndal. Þessi yljar sálinni á góðum degi. Ljósmynd/Valla Gröndal

Epli og kanill er góð jólablanda og hefur ávallt verið í miklu uppáhaldi hjá Valgerði Grétu Gröndal sælkera og matarbloggara, alla jafna kölluð Valla. Hún deildi á dögunum með fylgjendum sínum á Instagram hugmynd af þessari jólalegu eplaböku sem sló í gegn á hennar heimili sem vel er hægt að mæla með.

Epli og kanill er góð jólablanda og hefur ávallt verið í miklu uppáhaldi hjá Valgerði Grétu Gröndal sælkera og matarbloggara, alla jafna kölluð Valla. Hún deildi á dögunum með fylgjendum sínum á Instagram hugmynd af þessari jólalegu eplaböku sem sló í gegn á hennar heimili sem vel er hægt að mæla með.

„Allra handa eplakökur eru fljótar að rjúka út á mínu heimili og þessi er engin undantekning. Þrátt fyrir að vera formkaka er hún dúnmjúk og kryddbragðið passar fullkomlega með eplunum. Það er nefnilega eplasafinn sem á stóran þátt í að gera hana mjúka og djúsí og gefur auðvitað ennþá betra eplabragð,“ segir Valla um eplakökuna sína sem hún tileinkar jólunum.

Jólaleg eplabaka

  • 2 græn epli, í minni kantinum
  • 250 g hveiti
  • 1 ½ tsk. lyftiduft
  • ½ tsk. matarsódi
  • ½ tsk. salt
  • 4 tsk. kanill
  • 1 tsk. malað engifer
  • ½ tsk. negull
  • ¼ tsk. allrahanda (má sleppa)
  • ¼ tsk. múskat
  • 160 ml. jurtaolía
  • 200 g púðursykur
  • 3 tsk. vanilludropar
  • 2 stk. egg við stofuhita
  • 60 ml. eplasafi frá Beutelsbacher
  • 60 ml. grísk jógúrt

Aðferð:

  1. Byrjið á því að hita ofninn í 175°C blástur. Smyrjið kringlótt formkökuform mjög vel að innan og dustið hveiti yfir.
  2. Afhýðið eplin og rífið á rifjárni, setjið til hliðar.
  3. Setjið öll þurrefnin saman í skál, blandið þeim saman með písk eða gaffli og setjið til hliðar.
  4. Þeytið saman egg og sykur með k-áinu á hrærivélinni, bætið þá út í olíunni, vanilludropunum og grísku jógúrtinni og hrærið saman við.
  5. Setjið þá helminginn af þurrefnunum út í og hrærið á rólegum hraða. Þá hellið þið eplasafanum saman við og klárið að hella þurrefnunum út í.
  6. Munið að skafa niður á milli.
  7. Hrærið aðeins áfram þar til deigið er samlagað.
  8. Setjið þá eplin saman við með sleikju og setjið deigið í formið.
  9. Bakið í 35-40 mínútur.
  10. Kakan er tilbúin þegar prjóni sem stungið er í hana kemur hreinn upp.
  11. Berið fram á fallegan og jólalegan hátt. Upplagt er sáldrað aðeins af flórsykri yfir kökuna ef þið viljið hafa hana jólalegri en það má sleppa því.
mbl.is