Lítillega hefur dregið úr gosóróa og sýnilegri virkni gossins við Sundhnúkagígaröðina frá því í gær. Hraunstraumurinn sem legið hefur til vesturs, í átt að varnargörðum við Svartsengi og Bláa lónið, hefur hægt á sér og kólnað á yfirborði.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands.
Aftur á móti má þó búast við að hraunrennslið haldi áfram undir yfirborðinu.
Nyrsti gígurinn er virkastur og frá honum liggur nú megin hraunstraumurinn til austur.
Syðsti gígurinn er enn virkur og sést af og til kvika slettast upp fyrir gígbarma hans.
Vindáttinn snýst og verður breytileg í dag og má því vænta þess að gosmengunin geti dreifst um nærliggjandi svæði á suðvesturhelmingi landsins.