Sjáið Berglindi gera nostalgíu súkkulaðijólatré

Uppskriftir | 25. nóvember 2024

Sjáið Berglindi gera nostalgíu súkkulaðijólatré

Berglind Hreiðars hjá Gotterí og gersemar fór á kostum um helgina þegar hún útbjó og setti saman þetta dýrðlega súkkulaðijólatré. Eftir að hafa horft á handbragð hennar virkar þetta sáraeinfalt. Nú er bara að prófa.

Sjáið Berglindi gera nostalgíu súkkulaðijólatré

Uppskriftir | 25. nóvember 2024

Dýrðlegt að horfa á þetta súkkulaðijólatré, fangar bæði augu og …
Dýrðlegt að horfa á þetta súkkulaðijólatré, fangar bæði augu og munn. Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Berglind Hreiðars hjá Gotterí og gersemar fór á kostum um helgina þegar hún útbjó og setti saman þetta dýrðlega súkkulaðijólatré. Eftir að hafa horft á handbragð hennar virkar þetta sáraeinfalt. Nú er bara að prófa.

Berglind Hreiðars hjá Gotterí og gersemar fór á kostum um helgina þegar hún útbjó og setti saman þetta dýrðlega súkkulaðijólatré. Eftir að hafa horft á handbragð hennar virkar þetta sáraeinfalt. Nú er bara að prófa.

„Ég sá þessa hugmynd á Instagram um daginn og gat ekki hætt að hugsa um hana fyrr en ég væri búin að prófa því mér fannst þetta svo sniðug hugmynd,“ segir Berglind.

Sjáið handbragðið hér á Instagram.

Súkkulaðijólatré

  • 300 g dökkt súkkulaði
  • 80 g möndlur
  • 80 g pistasíur
  • 40 g pekanhnetur
  • 40 g trönuber
  • 40 g heslihnetur
  • 40 g lakkrísflögur

Aðferð:

  1. Saxið hnetur og möndlur gróft niður og blandið í skál ásamt trönuberjunum.
  2. Bræðið súkkulaði og teiknið 8 hringi á bökunarpappír, minnsti um 3 cm í þvermál og svo stækka um ½-1 cm hvern eftir það.
  3. Smyrjið næst vænu súkkulaðilagi inn í hvern hring, skiljið eftir c.a ½ cm allan hringinn því súkkulaðið flest betur út þegar þið setjið hnetublönduna yfir.
  4. Dreifið næst vel af hnetublöndu yfir hvern súkkulaðihring og að lokum lakkrísflögum.
  5. Kælið/frystið þar til storknað og raðið síðan saman með því að setja smá brætt súkkulaði á milli hringja.
  6. Skreytið með því að sigta smá flórsykur yfir allt saman (má sleppa).
  7. Berið fram og njótið – eða skreytið með þessari dýrð.
mbl.is