Vill minnka umsvif ríkisins

Alþingiskosningar 2024 | 25. nóvember 2024

Vill minnka umsvif ríkisins

Guðrún Hafsteinsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, segir mörg mál bera á góma í þessu víðfeðma kjördæmi. Nefnir hún t.d. efnahagsmál, vexti, fyrirhugað kílómetragjald og hælisleitendamálin.

„Ég sem sjálfstæðismanneskja myndi vilja sjá ríkið dragast meira saman og það færi meira hér út á hinn almenna markað,“ segir hún.

Hún ver verðmiðann á Ölfusárbrú og segir að brúin þurfi að þola álag eins og til dæmis Suðurlandsjarðskjálfta, krapaflóð og mikið vatnsrennsli.

Hælisumsóknum fækkað um 54%

Guðrún gengst við því að hælisleitendamálin hafi farið úr böndunum í stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins, en segir að upphafið hafi verið þegar útlendingalög voru samþykkt árið 2016 í þverpólitískri sátt.

Hún bendir á að hælisumsóknum hafi fækkað um 54% á þessu ári. Hún vill frekar einblína á að taka á móti kvótaflóttamönnum en hælisleitendum.

„Ég held að við getum ekki tekið nema á móti einhverjum tugum flóttamanna [á ári] svo vel sé,“ segir Guðrún.

mbl.is