Landhelgisgæslan kveðst í svari við fyrirspurn 200 mílna hafa fylgst með hafís sem rekur vestur af landinu og er reiknað með að þyrla á vegum stofnunarinnar fari í könnunarflug á morgun.

Ekki hefur verið hægt að fljúga yfir með flugvél þar sem unnið er að viðhaldi á TF-SIF á Möltu.
Greint var frá því fyrr í dag að Rifsnes SH-44 hefði á leið í land verið umkringt hafís mun sunnar en sást á hafískorti Veðurstofu Íslands í gær.
„Landhelgisgæslan hefur undanfarnar vikur fylgst vel með umræddum hafís, bæði með gervitunglamyndum og einnig farið í eftirlitsflug á þyrlum yfir svæðið. Þá hefur stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fylgst vel með legu hafíssins og gefið út siglingaviðvaranir og sendir út á Navtex til sjófarenda upplýsingar um staðsetningu einstakra borgarísjaka og hafíss. Einnig hafa sjófarendur verið duglegir að tilkynna um legu íssins,“ segir í svari stofnunarinnar.
Í fyrirspurn 200 mílna var spurt hvort til stæði að fljúga yfir hafsvæðið vestur af landinu til að meta útbreiðslu hafíss.
„Verið er að leggja lokahönd á viðhald TF-SIFJAR á Möltu og gert er ráð fyrir að vélin verði komin til landsins í desember og geti þá annast eftirlit í lögsögunni sem mun styðja við aðrar einingar sem Landhelgisgæslan hefur til eftirlits. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar mun fara í ísflug á morgun,“ segir í svarinu.