Hin nýkrýnda Ungfrú heimur, Victoria Kjær Theilvig, hefur fengið á sig mikla gagnrýni vegna myndbands sem sýnir hana „mæma” niðrandi orð í garð fólks með dökkan húðlit.

Theilvig deildi myndskeiði af sér á TikTok að raula með laginu Empire State of Mind, sem þau Jay-Z og Alicia Keys gerðu frægt hér um árið, er hún stóð á toppi Empire State-byggingarinnar í New York nú á dögunum.
Bandaríski rapparinn Jay-Z segir umrætt orð í rapphluta lagsins.
Fjölmargir netverjar rituðu athugasemdir við færsluna og sögðu þetta mjög óviðeigandi. Myndbandið var snögglega fjarlægt af samfélagsmiðlasíðunni í kjölfar gagnrýninnar.
Theilvig hefur ekki beðist afsökunar á atvikinu.
Theilvig, sem er 21 árs gömul og frá Danmörku, stóð uppi sem sigurvegari í fegurðarsamkeppninni sem haldin var í Mexíkóborg um miðjan mánuð. Hún er fyrsta danska konan til þess að hljóta titilinn.