Herkastalinn við Kirkjustræti 2 í Reykjavík var töluvert í fréttum á árinu eftir að svokallað Wok On mál leit dagsins ljós. Viðskiptamaðurinn Quang Le festi kaup á húsinu 25. janúar 2022 í gegnum félagið NQ fasteignir ehf.

Nú er fasteignin komin á sölu.
Um er að ræða 1405,4 fm fasteign sem teiknuð var af Einari Erlendssyni og reist 1916. Húsið skiptist í kjallara, þrjár hæðir og rishæð. Húsið er skráð sem gistihús í þjóðskrá..
Í dag er að finna 54 herbergi í húsinu.
Fasteignamat hússins er 545.900.000 kr. en óskað er eftir tilboðum í húsið.
Í september sagði Quang Le í viðtali við mbl.is að hann væri að vinna að því að opna Herkastalann og sagði að félagið NQ fasteignir ehf. væri ekki farið í þrot en fasteignin var kyrrsett þegar Wok On málið kom upp.