Anna Sigurlaug Pálsdóttir fjárfestir mætti með eiginmanni sínum, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni formanni Miðflokksins, á kjörstað fyrr í dag. Hjónin kusu í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ.

Anna Sigurlaug var vel klædd þegar hún lagði lykkju á leið sína til þess að kjósa sitt fólk í dag. Hún klæddist ljósbrúnni kápu frá Max Mara og var með klút um hálsinn í sömu litapallettu.
Kápur af þessu tagi eru úr vönduðu ullarefni og þykja lífstíðareign. Þær kosta í kringum 200.000 kr. en það er aðeins misjafnt eftir sniði, efnablöndu og lit.
Max Mara er ítalskt fatamerki sem var stofnað 1951. Í dag er merkið selt í 502 verslunum í 69 löndum, þar á meðal á Íslandi í versluninni Evu.
Það telst til tíðinda að Anna Sigurlaug náist á ljósmynd því hún er ekki mikið fyrir sviðsljósið. Hún á hins vegar fullt erindi og ætti að láta ljós sitt skína skærar.