„Stjórnarandstaðan fékk áheyrn þjóðarinnar um breytingar. Nú er boltinn bara hjá þeim sem sögðust ætla að breyta öllu.“
„Stjórnarandstaðan fékk áheyrn þjóðarinnar um breytingar. Nú er boltinn bara hjá þeim sem sögðust ætla að breyta öllu.“
„Stjórnarandstaðan fékk áheyrn þjóðarinnar um breytingar. Nú er boltinn bara hjá þeim sem sögðust ætla að breyta öllu.“
Þetta segir Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, en flokkurinn missir átta menn af þingi samkvæmt niðurstöðum alþingiskosninganna í gær.
Lengi var útlit fyrir að Sigurður Ingi myndi sjálfur missa þingsæti en hann gaf oddvitasæti sitt í Suðurkjördæmi eftir til Höllu Hrundar Logadóttur.
Þegar síðasta atkvæðið hafði verið talið og tilkynnt um lokatölur um hádegisbil í dag var ljóst að Sigurður Ingi héldi sæti sínu. Um súrsætan sigur fyrir formanninn var þó að ræða því Lilja D. Alfreðsdóttir, varaformaður flokksins, missti sæti sitt í leiðinni.
Sigurður Ingi segir baráttuna um jöfnunarþingsætin mikla hringekju og hringavitleysu. Enginn viti hvernig hún endar fyrr en búið er að telja síðasta atkvæðið.
„Það eru auðvitað blendnar tilfinningar yfir þessu. Þegar þetta er bara innan sama flokks þá glest maður hóflega yfir eigin þingsæti,“ segir Sigurður í samtali við mbl.is og minnist sérstaklega á að mjög vont sé fyrir land og þjóð að tapa Willum Þór Þórssyni út af þingi.
Framsóknarflokkurinn sótti fimm nýja þingmenn í síðustu kosningum. Sigurður segir það hafa verið stórsigur en flokkurinn fékk þá 13 menn hafandi verið búinn að vera í ríkisstjórn í fjögur ár.
„Það er ágætt að setja það í samhengi við stórsigur Samfylkingarinnar sem er með 15 menn núna. Okkur er refsað sem ríkisstjórnarflokki og að mér finnst að ósekju og fullgrimmilega. Það verðum við bara að sætta okkur við en lýðræðið talar – fólkið í landinu ræður.“
Sigurður Ingi kveðst stoltur af verkum ríkisstjórnarinnar og verkunum sem Framsóknarflokkurinn hefur staðið fyrir líti hann til baka. Hann kveðst stoltur af því samfélagi sem við höfum búið í og stöðunni.
„Við erum að skila mjög góðu búi til næstu ríkisstjórnar. Verðbólgan verður kominn niður í þrjú og hálft prósent ef ný ríkisstjórn mun ekki eyðileggja það í apríl og þrjú prósent næsta sumar,“ segir Sigurður Ingi og það má vel greina í rödd hans þó nokkra óánægju með niðurstöðuna.
„Núna er boltinn hjá þeim sem sögðust ætla að laga allt og gera allt fyrir alla en aðallega að ná niður verðbólgu.“