Kristrún fyrst á fund forseta

Alþingiskosningar 2024 | 1. desember 2024

Kristrún fyrst á fund forseta

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, verður fyrsti formaður flokkanna sem fengu þingmenn kjörna til þess að fara á fund með Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, á morgun.

Kristrún fyrst á fund forseta

Alþingiskosningar 2024 | 1. desember 2024

Kristrún Frostadóttir og Halla Tómasdóttir á Staðastað í október.
Kristrún Frostadóttir og Halla Tómasdóttir á Staðastað í október. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, verður fyrsti formaður flokkanna sem fengu þingmenn kjörna til þess að fara á fund með Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, á morgun.

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, verður fyrsti formaður flokkanna sem fengu þingmenn kjörna til þess að fara á fund með Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, á morgun.

Fundur Höllu og Kristrúnar verður klukkan 9 á Bessastöðum. Klukkan 10 fundar Halla með Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins og klukkan 11 fundar hún með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, formanni Viðreisnar.

Klukkan 13 verður fundur forseta og Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins, og klukkustund síðar fundar Halla með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, rekur lestina og fundar með Höllu klukkan 15.

Fleiri flokkar komust ekki inn á þing að þessu sinni.

mbl.is