Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, er kominn á Bessastaði þar sem hann fundar með Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands.

Fyrr í morgun fundaði Halla með Kristrúnu Frostadóttur, formanni Samfylkingarinnar. Kristrún var fyrst til að funda með forsetanum af formönnum flokkanna sem fengu þingmenn kjörna í kosningunum.
Klukkan 11 fundar Halla síðan með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, formanni Viðreisnar.
Klukkan 13 verður fundur forseta og Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins, og klukkustund síðar fundar Halla með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins.
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, rekur lestina og fundar með Höllu klukkan 15.