Kristrún og Þorgerður hafa rætt saman

Alþingiskosningar 2024 | 2. desember 2024

Kristrún og Þorgerður hafa rætt saman

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, hafa rætt saman eftir að úrslit lágu fyrir í alþingiskosningum í gær. 

Kristrún og Þorgerður hafa rætt saman

Alþingiskosningar 2024 | 2. desember 2024

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir kemur á fund Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir kemur á fund Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. mbl.is/Eyþór

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, hafa rætt saman eftir að úrslit lágu fyrir í alþingiskosningum í gær. 

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, hafa rætt saman eftir að úrslit lágu fyrir í alþingiskosningum í gær. 

Þorgerður staðfesti þetta við blaðamenn þegar hún kom til fundar við forseta Íslands á Bessastöðum klukkan 11.

„Við Kristrún höfum aðeins talað saman já, á milli pallborða og setta hjá ykkur.“

Talað hefur verið um að Samfylking og Viðreisn séu þeir flokkar sem líklegastir eru til að koma að myndun nýrrar ríkisstjórnar, ásamt þriðja flokki, þá hugsanlega Flokki fólksins.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ræddi stutt við blaðamenn fyrir fundinn.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ræddi stutt við blaðamenn fyrir fundinn. mbl.is/Eyþór

Kristrún átti fund með forseta klukkan 9 í morgun en þegar hún ræddi við blaðamenn eftir fundinn vildi hún lítið gefa upp hvaða formenn hún hefði rætt við. Hún sagði þó eðlilegt á þessum tímapunkti að einhverjir formenn væru að ræða saman.

„Mér finnst það mjög eðli­legt á þess­um tíma­punkti, en ég ætla bara að leyfa ferl­inu að eiga sér stað með eðli­leg­um hætti,“ sagði hún og vísaði þar til þess að Halla ætti í dag eft­ir að ræða við alla for­menn þeirra flokka sem komust á þing.

mbl.is