„Stöndum með okkar kjarnamálum“

Alþingiskosningar 2024 | 2. desember 2024

„Stöndum með okkar kjarnamálum“

Flokkur fólksins er stærsti flokkurinn í Suðurkjördæmi, en hann hlaut 20% atkvæða og tvo menn kjörna á Alþingi. Næstur honum kom Sjálfstæðisflokkurinn með 19,6% atkvæða, en Samfylkingin er í þriðja sæti með 17,3%. Síðan koma Miðflokkurinn með 13,6%, Framsóknarflokkurinn með 12% og Viðreisn með 11,2%.

Þær Ásthildur Lóa Þórsdóttir og Inga Sæland fóru ekki leynt …
Þær Ásthildur Lóa Þórsdóttir og Inga Sæland fóru ekki leynt með gleði sína þegar kosningasigur flokksins í Suðurkjördæmi varð ljós. mbl.is/Karítas

Flokkur fólksins er stærsti flokkurinn í Suðurkjördæmi, en hann hlaut 20% atkvæða og tvo menn kjörna á Alþingi. Næstur honum kom Sjálfstæðisflokkurinn með 19,6% atkvæða, en Samfylkingin er í þriðja sæti með 17,3%. Síðan koma Miðflokkurinn með 13,6%, Framsóknarflokkurinn með 12% og Viðreisn með 11,2%.

Flokkur fólksins er stærsti flokkurinn í Suðurkjördæmi, en hann hlaut 20% atkvæða og tvo menn kjörna á Alþingi. Næstur honum kom Sjálfstæðisflokkurinn með 19,6% atkvæða, en Samfylkingin er í þriðja sæti með 17,3%. Síðan koma Miðflokkurinn með 13,6%, Framsóknarflokkurinn með 12% og Viðreisn með 11,2%.

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, oddviti Flokks fólksins, er því 1. þingmaður kjördæmisins, en hún er jafnframt orðin forseti Alþingis og verður það a.m.k. uns kosið verður upp á nýtt í þau embætti.

„Ég þakka þennan árangur fyrst og fremst því að við höfum verið dugleg og vinnusöm á kjörtímabilinu, breytum ekki um kúrs og stöndum með okkar kjarnamálum, sem eru húsnæðismálin, baráttan við vextina og að hjálpa þeim sem minnst mega sín,“ segir Ásthildur Lóa í samtali við Morgunblaðið.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

mbl.is