Dýraverndarsamband Íslands (DÍS) hefur ákveðið að beina kvörtun til umboðsmanns Alþingis vegna ákvörðunar Bjarna Benediktssonar starfandi matvælaráðherra að leyfa veiðar á langreyðum og hrefnum til fimm ára.

„Dýraverndarsamband Íslands (DÍS) mótmælir harðlega ótímabærri ákvörðun um hvalveiðar til næstu fimm ára.
Í dag veitti Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og matvælaráðherra í starfsstjórn leyfi til veiða á langreyðum og hrefnum til næstu fimm ára. Dýraverndarsamband Íslands hefur vegna þessa ákveðið að beina kvörtun til umboðsmanns Alþingis þar sem sambandið telur um hreina valdníðslu að ræða.
Samkvæmt skráðum og óskráðum reglum stjórnskipunarréttar eru valdheimildir starfsstjórnar takmarkaðri en hefðbundinnar ríkisstjórnar. Starfsstjórn eftir lausnarbeiðni á ekki og má ekki, að okkar mati, taka jafn afdrifaríka ákvörðun í hápólitísku deilumáli,“ segir í tilkynningu frá samtökunum.