Pírati vill láta ógilda kosningarnar

Alþingiskosningar 2024 | 6. desember 2024

Pírati vill láta ógilda kosningarnar

Indriði Ingi Stefánsson, sem var í fimmta sæti á lista Pírata í Suðvesturkjördæmi í nýafstöðnum kosningum, hefur sent inn kæru til Alþingis um ógildingu þeirra.

Pírati vill láta ógilda kosningarnar

Alþingiskosningar 2024 | 6. desember 2024

Indriði tilgreinir sjö galla í kærunni.
Indriði tilgreinir sjö galla í kærunni. Samsett mynd/mbl.is/Ólafur Árdal/Aðsend mynd

Indriði Ingi Stefánsson, sem var í fimmta sæti á lista Pírata í Suðvesturkjördæmi í nýafstöðnum kosningum, hefur sent inn kæru til Alþingis um ógildingu þeirra.

Indriði Ingi Stefánsson, sem var í fimmta sæti á lista Pírata í Suðvesturkjördæmi í nýafstöðnum kosningum, hefur sent inn kæru til Alþingis um ógildingu þeirra.

Í kærunni segir hann alla framkvæmd kosninganna og atkvæðagreiðslu utan kjörfundar hafa borið þess merki að kosningar hefðu borið skyndilega að.

„Það eru það mörg atriði að það sé að mínu mati hægt að fullyrða að allt sé í lagi,” segir Indriði, spurður út í kæruna.

Frá kjörstað.
Frá kjörstað. mbl.is/Ólafur Árdal

Þar kemur fram að nokkrir gallar hafi verið á framkvæmd kosninganna, misalvarlegir. Hann tilgreinir í kærunni sjö galla á framkvæmd kosninganna:

  • Innsigli voru ófullnægjandi.
  • Mikill misbrestur er á að 11. gr. reglna um gerðabækur kjörstjórna og innsigli við kosningar 1661/2023 sé fylgt eftir
  • Litur kjörseðla í Suðvesturkjördæmi var ekki í öllum tilvikum sá sami.
  • Botnar sumra kjörkassa voru með rifum og hægt að koma kjörseðlum inn í þá.
  • Við framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu voru nokkur utankjörfundaratkvæði án atkvæðaumslags.
  • Við utankjörfund var í raun einfalt að afla atkvæða og bæta við.
  • Landskjörstjórn gaf út rangar leiðbeiningar til kjörstjórna um mat á gildi utankjörfundaratkvæða 

„Dagsgamlar snittur og sælgæti“

Indriði nefnir í kærunni að listinn yfir ágalla á framkvæmd kosninganna sé engan veginn tæmandi. Til að mynda hafi tímalengd talningar í Suðvesturkjördæmi verið óboðleg.

Alþingi.
Alþingi. mbl.is/Eyþór Árnason

„Undirritaður var á talningarstað í 15 klukkutíma án þess að hafa almennilegt aðgengi að mat, þar sem yfirkjörstjórn útvegaði ekki annan mat en dagsgamlar snittur og sælgæti. Á kjördag er jafnframt mikið að gera hjá umboðsmönnum og fá tækifæri til að nærast. Framkvæmdin á að styðja við starf umboðsmanna og þetta er varla boðlegt,“ skrifar hann og nefnir í lokin:  

„Ég ítreka að þetta voru ekki einu gallarnir á kosningum og um aðra er bókað í gerðabók en að ofangreindu ætti að ógilda kosningarnar og kjósa aftur.“

Í samtali við mbl.is segir hann að afstaða verður ekki tekin til kærunnar fyrr en landskjörstjórn hefur staðfest kosningarnar.

mbl.is