Landris og skjálftar gefa til kynna virkt innflæði kviku í eldstöðina Bárðarbungu.
Landris og skjálftar gefa til kynna virkt innflæði kviku í eldstöðina Bárðarbungu.
Landris og skjálftar gefa til kynna virkt innflæði kviku í eldstöðina Bárðarbungu.
Skýrt merki um landris hefur verið í Bárðarbungu síðan Holuhraunsgosinu lauk í febrúar 2015. Eldgosið hafði þá staðið yfir í hálft ár.
Fyrir tveimur árum dró aðeins úr hraða landrissins, sem hefur svo aðeins tekið að aukast aftur. Breytingarnar hafa þó ekki verið stórvægilegar en landrisið hefur verið viðvarandi í tíu ár.
Þetta segir Benedikt Gunnar Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga hjá Veðurstofu Íslands.
Skjálfti af stærðinni 5,1 reið yfir Bárðarbungu aðfaranótt sunnudags. Þetta er fjórði skjálftinn um eða yfir fimm að stærð sem hefur mælsti í eldstöðinni á árinu.
„Það hefur verið vinna við að meta hvað af þessu [landrisinu] er vegna virks innflæðis kviku og hvað er vegna þess að jarðskorpan er bara að jafna sig,“ segir Benedikt.
„En það er alveg klárt að það hefur verið kvikuinnflæði frá því að gosinu lauk. Það er líka það sem skjálftarnir eru að segja okkur. Við fórum að sjá þessa skjálfta fljótlega eftir að þessu gosi lauk.“
Eftir síðasta eldgos í Bárðarbungu seig askjan í eldstöðinni niður um 65-70 metra. Benedikt segir Veðurstofuna ekki með mælingar sem sýni hvort askjan sjálf sé farin að rísa.
Mælar Veðurstofunnar sýni aftur á móti landris umhverfis öskjuna sem gefi til kynna þrýsting undir yfirborðinu.
„Þetta er aðeins flóknara ferli í Bárðarbungu en til dæmis í Svartsengi.“
„Bárðarbunga er sennilega okkar öflugasta eldstöð og hún hefur sýnt alveg frá 1974 ákveðna virkni sem segir okkur ákveðna sögu,“ sagði Páll Einarsson í samtali við mbl.is í gær.
Hluti af þeirri sögu er eldgosið í Gjálp 1996 og svo eldgosið í Holuhrauni, sem stóð yfir frá ágúst 2014 til janúar 2015. Páll segir skjálftana tengjast hreyfingu í öskju undir jöklinum.
„Það er kvikustreymi að stöðinni núna og hún er að safna sér efni í næsta gos. Hvenær það verður, það er erfiðara að segja til um það.“