Fjárfestu í nýjum rannsóknabúnaði

Hafrannsóknastofnun | 11. desember 2024

Fjárfestu í nýjum rannsóknabúnaði

Hafrannsóknastofnun hefur tekið í notkun nýja smásjár og víðsjár, en eldri tæki voru komin verulega til ára sinna og hættar að standast kröfur nútímans, að því er segir í færslu á vef stofnunarinnar.

Fjárfestu í nýjum rannsóknabúnaði

Hafrannsóknastofnun | 11. desember 2024

Laure de Montety sjávarlíffræðingur við splunkunýja Olympus SZX16 víðsjá.
Laure de Montety sjávarlíffræðingur við splunkunýja Olympus SZX16 víðsjá. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun

Hafrannsóknastofnun hefur tekið í notkun nýja smásjár og víðsjár, en eldri tæki voru komin verulega til ára sinna og hættar að standast kröfur nútímans, að því er segir í færslu á vef stofnunarinnar.

Hafrannsóknastofnun hefur tekið í notkun nýja smásjár og víðsjár, en eldri tæki voru komin verulega til ára sinna og hættar að standast kröfur nútímans, að því er segir í færslu á vef stofnunarinnar.

Fest var kaup á tækjunum nýverið að loknu útboði á Evrópska efnahagssvæðinu. Samþykkt var tilboð frá Medor fyrir tvær smásjár og fjórar víðsjár frá Olympus.

Smásjárnar eru sagðar tvennskonar, annars vegar hefðbundin smásjá og hins vegar viðsnúin smásjá eða það sem kallað er Inverted Microscope á ensku. Víðsjárnar eru allar af svipaðri gerð og verða tvær í rannsóknastofu Hafrannsóknastofnunar á Ísafirði, en hin tækin verða í i höfuðstöðvum stofnunarinnar að Fornubúðum í Hafnarfirði.

Marfló af tegundinni pontoporeia-femorata, mynd sem var tekin í einni …
Marfló af tegundinni pontoporeia-femorata, mynd sem var tekin í einni af nýju smásjánni. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun

„Með hverri smásjá og víðsjá fylgir myndavél sem er nýlunda sem styrkir mjög vísindastarfið. Báðar smásjárnar gefa möguleika á að skoða sýni með svonefndu Diffrential Interference Contrast (DIC) sem einnig er nýlunda við greiningar sýna hjá Hafrannsóknastofnun og ljóst að tækin eiga eftir að nýtast við rannsóknir á öllum fagsviðum og efla rannsóknir Hafrannsóknastofnunar,“ segir í færslunni.

mbl.is