Harpa Kára farðaði Önnu Brauna með litum sem margir hræðast

Snyrtivörur | 11. desember 2024

Harpa Kára farðaði Önnu Brauna með litum sem margir hræðast

Förðunarfræðingurinn Harpa Káradóttir sýndi fallega hátíðaförðun í Apotek Atelier á föstudaginn var í samvinnu við íslenska tískumerkið Sif Benedicta. Verslunin Apotek Atelier selur íslenska hönnun frá Sif Benedicta, sem er í eigu Halldóru Sif Guðlaugsdóttur og líka hönnun Sævars Markúsar sem hannar undir sama nafni.

Harpa Kára farðaði Önnu Brauna með litum sem margir hræðast

Snyrtivörur | 11. desember 2024

Harpa Káradóttir farðaði Önnu Brauna.
Harpa Káradóttir farðaði Önnu Brauna. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir

Förðunarfræðingurinn Harpa Káradóttir sýndi fallega hátíðaförðun í Apotek Atelier á föstudaginn var í samvinnu við íslenska tískumerkið Sif Benedicta. Verslunin Apotek Atelier selur íslenska hönnun frá Sif Benedicta, sem er í eigu Halldóru Sif Guðlaugsdóttur og líka hönnun Sævars Markúsar sem hannar undir sama nafni.

Förðunarfræðingurinn Harpa Káradóttir sýndi fallega hátíðaförðun í Apotek Atelier á föstudaginn var í samvinnu við íslenska tískumerkið Sif Benedicta. Verslunin Apotek Atelier selur íslenska hönnun frá Sif Benedicta, sem er í eigu Halldóru Sif Guðlaugsdóttur og líka hönnun Sævars Markúsar sem hannar undir sama nafni.

„Ég notaði léttan og ljómandi farða frá Shiseido og notaði brúna og ljósfjólubláa tóna á augun því mér fannst það passa fötunum hennar Halldóru Sifjar,“ segir Harpa sem notaði augnskuggapallettu frá Dior, Dior Backstage Glow Faceg Palette.

„Ég endaði svo á fjólurauðum varalit og köldum bleikum kinnalit,“ segir Harpa en varaliturinn kemur frá MAC og heitir Amplified Lipstick.

Harpa segir að hún hafi mikla ánægju af því að farða fólk í litum sem margir hræðast en hér sannaði hún að fjólubláir augnskuggar og fjólurauðir varalitir eru hátíðlegir og fallegir þegar allt er komið á sinn stað í andlitum þokkadísa. Harpa komst í fréttir á dögunum þegar hún farðaði Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur fyrir kappræðurnar á Rúv sem fram fóru daginn fyrir kosningar sem fram fóru 30. nóvember. 

Hér sést fjólublái augnskugginn vel.
Hér sést fjólublái augnskugginn vel. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Anna klæddist fatnaði frá Sif Benedicta.
Anna klæddist fatnaði frá Sif Benedicta. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Harpa setti varalitablýant á Önnu.
Harpa setti varalitablýant á Önnu. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Harpa notaði liti sem hún segir að margir séu hræddir …
Harpa notaði liti sem hún segir að margir séu hræddir við. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Anna Brauna tilbúin í allt.
Anna Brauna tilbúin í allt. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
mbl.is