Guðmundur Ingi Þorvaldsson fer með hlutverk í nýútkominni Netflix-mynd, sem ber titilinn Mary.
Guðmundur Ingi Þorvaldsson fer með hlutverk í nýútkominni Netflix-mynd, sem ber titilinn Mary.
Guðmundur Ingi Þorvaldsson fer með hlutverk í nýútkominni Netflix-mynd, sem ber titilinn Mary.
Móðurskipuð, umboðsskrifstofa fyrir leikara, handritshöfunda og fleira listafólk, deildi tíðindunum á Instagram-síðu sinni fyrr í dag og birti myndir af Guðmundi Inga á rauða dreglinum á frumsýningu myndarinnar og einnig skjáskot sem sýnir hann í senu með stórleikaranum Sir Anthony Hopkins.
Guðmundur Ingi leikur yfirmann rómverska heraflans í kvikmyndinni sem fjallar um Maríu mey.
Mary hefur vakið mikla athygli á streymisveitunni síðustu daga og er í fjórða sæti yfir vinsælustu kvikmyndir á Netflix.
Guðmundur Ingi hefur gert það gott í leiklistinni undanfarin ár og er með fjögur verkefni í bígerð samkvæmt IMDb.