Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði og nýr þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, skartaði gifsi og kóngabláum velúrkjól á kynningarfundi fyrir nýja þingmenn sem haldinn var á dögunum. Kjóllinn er fullkominn fyrir tímann núna.

Kjóllinn er frá KronKron og er klassísk flík frá því íslenska fatamerki. Kjóllinn hefur verið til í mörg ár og það í nokkrum litum. Kjóllinn sem varð fyrir valinu hjá Rósu er í kóngabláum lit. Við kjólinn var hún með ljósa og dökkbrúna mynstraða slæðu sem má segja sé í gifslitunum. Slæðan er úr nýrri línu Andrea by Andrea sem er staðsett í Hafnarfirði.
Kjóllinn er úr 20% silki og 80% viskós. Efnið er mynstrað þó það beri ekki mikið á því en það er fengið með svokallaðri devoré-aðferð, einnig kölluð „burnout.“ Devoré-áferðin er oft notuð á velúrefni og er fengin með því að ákveðnar trefjar eru brenndar í burtu með kemískum efnum í sem býr til gegnsærri textíl. Það má ímynda sér það þannig að ef þú horfir á velúrefni á röngunni, það efni verður eftir á meðan það „mjúka“ á yfirborðinu hverfur. Þetta er aldagömul aðferð og ákaflega fallegt mynstur sem getur skapast. Flíkin verður oft líflegri og léttari fyrir vikið.
Á vefsíðu KronKron má finna kjólinn sem heitir Ursula. Hann kostar 45.900 krónur.