Guðdómlegt rauðrófusalat með hindberjum, heslihnetum og dilli

Uppskriftir | 16. desember 2024

Guðdómlegt rauðrófusalat með hindberjum, heslihnetum og dilli

Rauðrófur eru ákaflega vinsælar í salöt þessa dagana. Hér er uppskrift að guðdómlega góðu salati þar sem rauðrófur leika aðalhlutverkið með fersku dilli, hindberjum og heslihnetum. Ferska dillið settur punktinn yfir i-ið. Það er jólabragur á þessu salati og ljúft að njóta þess á aðventunni.

Guðdómlegt rauðrófusalat með hindberjum, heslihnetum og dilli

Uppskriftir | 16. desember 2024

Jólalegt og girnilegt salat með rauðrófum, hindberjum, dilli og heslihnetum.
Jólalegt og girnilegt salat með rauðrófum, hindberjum, dilli og heslihnetum. Ljósmynd/VAXA

Rauðrófur eru ákaflega vinsælar í salöt þessa dagana. Hér er uppskrift að guðdómlega góðu salati þar sem rauðrófur leika aðalhlutverkið með fersku dilli, hindberjum og heslihnetum. Ferska dillið settur punktinn yfir i-ið. Það er jólabragur á þessu salati og ljúft að njóta þess á aðventunni.

Rauðrófur eru ákaflega vinsælar í salöt þessa dagana. Hér er uppskrift að guðdómlega góðu salati þar sem rauðrófur leika aðalhlutverkið með fersku dilli, hindberjum og heslihnetum. Ferska dillið settur punktinn yfir i-ið. Það er jólabragur á þessu salati og ljúft að njóta þess á aðventunni.

Fallegt á diski.
Fallegt á diski. Ljósmynd/VAXA

Rauðrófusalat með hindberjum, heslihnetum og dilli

Fyrir 6-8

  • 4 stk. soðnar rauðrófur
  • 1 poki (100 g) heslihnetur án hýðis
  • 1 pk. VAXA ferskt dill
  • 1 pk. hindber
  • Góð ólífuolía
  • 4 msk. eplaedik
  • 2 msk. hunang
  • Flögusalt eftir smekk

Aðferð:

  1. Skerið rauðrófurnar í meðalstóra teninga (ca. 1 cm. *1 cm.) og setjið í skál.
  2. Bakið heslihneturnar í ofni við 150°C hita í 12-15 mínútur.
  3. Saxið þær síðan gróflega með hníf og setjið þær út í skálina með rauðrófunum.
  4. Geymið nokkrar til skreytinga.
  5. Plokkið nokkra fallega toppa af dillinu til skreytingar, saxið síðan restina og setjið í skálina.
  6. Hellið um það bil 4 msk. af eplaediki yfir ásamt 2 msk. af hunangi.
  7. Hellið svo vænum skammti af ólífuolíu yfir ásamt 1-2 tsk. af salti.
  8. Blandið þessu öllu vel saman.
  9. Skerið hindberin til helminga og setjið í skálina og blandið aftur saman, en í þetta skiptið varlega svo þið maukið ekki hindberin.
  10. Geymið ef til vill nokkra helminga af hindberjunum til skreytingar.
  11. Hellið salatinu í fallega skál og skreytið með dilltoppunum og hindberjunum.
  12. Berið fram og njótið.
mbl.is