Atli Freyr Sævarsson, markþjálfi og athafnamaður, og Hanna Kristín Skaftadóttir, viðskiptafræðingur, doktorsnemi og fagstjóri viðskiptagreindar við Háskólann á Bifröst, hafa fest kaup á fallegu einbýlishúsi á Seltjarnarnesi.

Húsið er við Lindarbraut 3 og er 210 fm að stærð. Húsið var reist 1980 og hefur verið töluvert endurhannað. Rut Káradóttir innanhússarkitekt hannaði til dæmis ný baðherbergi í húsinu sem eru afar smekkleg.
Eldhúsið í húsinu var endurnýjað 2008 og hafði að geyma eyju úr graníti og innréttingar sem eru bæði sprautulakkaðar og úr eik þegar húsið var auglýst til sölu.
Atli Freyr og Hanna Kristín greiddu 173.000.000 kr. fyrir húsið sem þau keyptu af Kristínu Laufey Guðjónsdóttur og Markúsi Mána Michaelssyni Maute.
Hanna Kristín setti íbúð sína við Melabraut á Seltjarnarnesi á sölu í fyrra en þá voru þau Atli Freyr nýlega trúlofuð en hann bað hennar á sólríku eyjunni sem Íslendingar elska, nefnilega Tenerife!
Smartland óskar Hönnu og Atla Frey til hamingju með nýja húsið!