„Maður verður auðvelt skotmark, sérstaklega þegar maður er orðinn prófíll einhvers staðar“

Podcast með Sölva Tryggva | 16. desember 2024

„Maður verður auðvelt skotmark, sérstaklega þegar maður er orðinn prófíll einhvers staðar“

Eyþór Wöhler, knattspyrnumaður og tónlistarstjarna, gefur lítið fyrir gagnrýni um að tónlistarferill hans hafi skemmt fyrir fótboltanum. Hann er í hljómsveitinni HúbbaBúbba. Eyþór, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar, segir það eiginlega vera algjöra tilviljun að hann hafi endað í tónlist, en segist njóta þess í botn.

„Maður verður auðvelt skotmark, sérstaklega þegar maður er orðinn prófíll einhvers staðar“

Podcast með Sölva Tryggva | 16. desember 2024

Eyþór Wöhler.
Eyþór Wöhler. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Eyþór Wöhler, knattspyrnumaður og tónlistarstjarna, gefur lítið fyrir gagnrýni um að tónlistarferill hans hafi skemmt fyrir fótboltanum. Hann er í hljómsveitinni HúbbaBúbba. Eyþór, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar, segir það eiginlega vera algjöra tilviljun að hann hafi endað í tónlist, en segist njóta þess í botn.

Eyþór Wöhler, knattspyrnumaður og tónlistarstjarna, gefur lítið fyrir gagnrýni um að tónlistarferill hans hafi skemmt fyrir fótboltanum. Hann er í hljómsveitinni HúbbaBúbba. Eyþór, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar, segir það eiginlega vera algjöra tilviljun að hann hafi endað í tónlist, en segist njóta þess í botn.

„Tónlistarferlinni byrjaði eiginlega fyrir tilviljun þegar við ákváðum að taka upp lag félagarnir og notuðum TikTok til að koma því á framfæri. Fyrst var ekki einu sinni planað að gefa þetta út, en svo fannst okkur lagið það gott að við ákváðum að kýla á þetta. En þegar ég skoða gömul TikTok myndbönd af þessu, þá er ekki heil brú í sumum þeirra. En svo hélt þessi bolti bara áfram að rúlla og nú eru komnar tvær plötur á aðeins 5 mánuðum. Þetta er snjóbolti sem vonandi heldur bara áfram að rúlla. Ég er mjög þakklátur fyrir þetta allt saman og nýt mín í botn í þessu. Ég vil bara hamra járnið áfram á meðan það er heitt,“ segir Eyþór. 

Þolir ekki að hanga heima

Eyþór er með marga bolta á lofti. Auk þess að vera bæði fótboltamaður og tónlistarmaður útskrifaðist hann nýverið sem markaðs- og viðskiptafræðingur úr háskóla. Ofan á það var hann að gefa út sína aðra bók. 

„Ég þoli ekki að vera heima hjá mér og hanga þar. Ég verð að vera á ferðinni og gera hluti. Ég vakna og fer út og er meira og minna úti allan daginn að gera hluti. Ég er svona gæi sem chillar ekki. Það er ekki búið að greina mig, en ætli ég sé ekki ofvirkur með athyglisbrest. En ég hef samt átt frekar auðvelt með nám í gegnum tíðina, þó að ég hafi ekkert alltaf lært eitthvað brjáæðislega mikið. En ég hugsa að minni 16 ára skólagöngu sé lokið núna.“

Var oft á varamannabekknum

Eyþór var orðinn nokkuð auðvelt skotmark í fótboltanum í sumar þegar ekki gekk vel hjá KR og sumir töldu að tónlistin væri að hafa áhrif á hann inni á vellinum. Hann gefur ekki mikið fyrir þá gagnrýni. 

„Maður verður auðvelt skotmark, sérstaklega þegar maður er orðinn prófíll einhvers staðar annars staðar. Ég mætti alltaf á æfingar og gerði allt sem ég gat til að standa mig og tel að það hafi ekkert verið hægt að kvarta undan vinnuframlaginu frá mér í fótboltanum. En það voru skrifaðar einhverjar fréttir í sumar um þetta, en ég tók það ekki inn á mig. En ég skil alveg eðli fjölmiðla og það selur auðvitað að benda á einhvern sem er orðinn vinsæll tónlistarmaður. En það eru 11 menn á vellinum og ég var oft á varamannabekknum. Ég reyni bara alltaf að gera mitt allra besta og sýna það í verki að ég geti látið það ganga upp að vera bæði í fótbolta og tónlist. Það er ekki hægt að festast í að pæla í einhverju umtali. Maður á alltaf lélega leiki inn á milli alveg sama hvort maður er í tónlist eða ekki. Þetta er bara eins og hver önnur vinna og margir fótboltamenn á Íslandi eru í annars konar vinnum, en það er ekki jafngaman að benda á það eins og tónlistina.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarp Sölva á hlaðvarspvef mbl.is. 

mbl.is